Enski boltinn

Barton: Get ekki beðið eftir að mæta Man. City

Nordic Photos / Getty Images
Ef Man. City ætlar að verða enskur meistari um helgina þá þarf liðið fyrst að komast í gegnum Joey Barton sem ætlar heldur betur að láta sitt gamla félag hafa fyrir hlutunum.

Barton fór frá félaginu árið 2007 og ætlar ekki að gefa þeim titilinn á silfurfati og sérstaklega ekki þar sem QPR er enn í fallhættu.

"Ég get ekki beðið eftir þessum leik. Ég get ekki beðið eftir að taka á Man. City. Þeir búast væntanlega við því að geta rúllað yfir okkur," sagði Barton.

"Ef viðhorf þeirra er þannig þá munu þeir vakna upp við vondan raunveruleika í leiknum. Þetta er 11 gegn 11 og mikil pressa á öllum. Ég get ekki beðið eftir þessum leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×