Obama stokkar upp í yfirstjórn hermála 28. apríl 2011 01:30 Obama og Panetta Leon Panetta hefur verið yfirmaður CIA í tvö ár. nordicphotos/AFP
Talið er að miklar mannabreytingar verði í yfirstjórn Bandaríkjahers og leyniþjónustunnar CIA í sumar í tengslum við varnarmálaráðherraskipti, sem fyrirhuguð eru þegar Robert Gates hættir. Búist er við því að Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynni í dag að Leon Panetta, yfirmaður leyniþjónustunnar CIA, muni taka við af Gates, en David Petraeus, sem er yfirmaður fjölþjóðahersins í Afganistan, komi í staðinn fyrir Panetta hjá CIA. Þá er reiknað með að herforinginn John Allen taki við af Petraeus sem yfirmaður hersveita NATO í Afganistan, en Ryan Crocker verði sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan. Bandaríska fréttastofan AP fullyrðir þetta, og vísar í ónafngreinda heimildarmenn bæði innan og utan Bandaríkjastjórnar. Gates hefur lýst því yfir að hann muni hætta sem varnarmálaráðherra fyrir árslok, og miðar þá við að ráðherraskiptin verði gengin um garð áður en kosningabarátta fer í gang af fullum krafti fyrir næstu forsetakosningar, sem verða haldnar haustið 2012. Öldungadeild Bandaríkjaþings þarf að samþykkja val forsetans í embætti varnarmálaráðherra, og er Obama sagður stefna á að Panetta komi fyrir þingnefnd á næstu mánuðum. Talið er að Panetta hafi orðið fyrir valinu sem varnarmálaráðherra bæði vegna þess að hann hefur langa reynslu af störfum við stjórnsýsluna í Washington, meðal annars af fjárlagagerð og sem starfsmannastjóri Bills Clinton forseta, og vegna þess að hann hefur aflað sér víðtækrar reynslu í tengslum við yfirmannsstörfin hjá CIA. Hann er sagður hafa ferðast til meira en 30 landa og komið á fleiri en 40 bækistöðvar Bandaríkjahers og leyniþjónustunnar CIA. Vitað var að Petraeus myndi hætta í Afganistan fyrir árslok og miklar vangaveltur hafa verið um það til hvaða starfa hann færi næst. Petraeus hefur ekki starfað lengi sem yfirmaður herliðsins í Afganistan. Hann tók við því embætti í júní síðastliðnum en hafði áður verið yfirmaður fjölþjóðaherliðsins í Írak. Petraeus heldur því fram að öflug sókn hersins, einkum gegn talibönum í sunnanverðu landinu, undanfarinn vetur hafi dregið mjög úr mætti þeirra. Bandaríkin stefna að því að hefja brottflutning herliðs síns frá Afganistan nú í sumar og búa jafnframt afganska herinn undir að taka við. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Innlent Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fleiri fréttir Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Sjá meira