Erlent

Boðflennur í verulegum vandræðum

Hjónin virðast hafa skemmt sér konunglega í veislunni. Fjörið gæti aftur á móti haft alvarlegar afleiðingar.
Hjónin virðast hafa skemmt sér konunglega í veislunni. Fjörið gæti aftur á móti haft alvarlegar afleiðingar.

Leyniþjónusta Bandaríkjanna (CIA) er við það að hefja glæparannsókn á boðflennunum Tariq og Michaale Salahis. Hjónin smygluðu sér inn í veislu í Hvíta húsinu sem var haldin á dögunum til heiðurs indverska forsætisráðherranum, Manmohan Singh.

Alls var þrjúhundruð gestum boðið í veisluna og mátti þar finna helstu fyrirmenni Bandaríkjanna. Auk þess voru forsetahjónin í veislunni en þau voru aldrei í hættu að sögn leyniþjónustunnar.

Hjónin, sem eru að reyna að komast í raunveruleikaþáttinn Real Houswifes, virðast hafa farið í veisluna til þess að heilla framleiðendur þáttanna og sýna og sanna að þau væru sannkölluð samkvæmisljón.

Málið þykir hinsvegar verulega vandræðalegt fyrir bandarísku leyniþjónustuna og öryggisverði Hvíta hússins enda komst það ekki upp fyrr en hjónin birtu myndir af sér á Facebook síðu sinni - þar á meðal sátu þau fyrir með Joe Biden, varaforseta Bandaríkjanna.

Washington Post birti svo myndirnar í vikunni.

Talsmaður leyniþjónustunnar, Jim Mackin, sagði í viðtali við New York Post að málið væri að þokast í áttina að glæparannsókn. Meðal annars fóru útsendarar leyniþjónustunnar á búgarð hjónanna í Virginíu í Bandaríkjunum og freistuðust til þess að ræða við þau. Þar eiga útsendararnir að hafa sagst ekki ætla að handtaka hjónin - enn - aftur á móti yrði gripið til viðeigandi ráðstafanna ef þau yrðu ekki samstarfsfús.


Tengdar fréttir

Salahi-hjónin eru vanar boðflennur

Hjónin sem laumuðu sér óboðin í hátíðarkvöldverð í Hvíta húsinu á þriðjudaginn, og fréttastofan greindi frá í gær, eru að öllum líkindum ekki byrjendur í faginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×