Enski boltinn

500/1 að Gazza taki við Tottenham

500 á móti einum - Gazza þykir eðlilega ekki mjög líklegur til að taka við Tottenham
500 á móti einum - Gazza þykir eðlilega ekki mjög líklegur til að taka við Tottenham NordicPhotos/GettyImages

Veðbankar á Englandi hafa nú mikið að gera við að taka við veðmálum um það hver verði ráðinn næsti stjóri Tottenham, fari svo að Martin Jol verði rekinn.

Jol þykir mjög valtur í sessi þessa dagana og ekki batnaði staða hans í gærkvöld þegar mistækir og andlausir leikmenn hans fengu 3-1 skell norður í Newcastle.

Veðbankar eru á því að það verði Jurgen Klinsmann sem taki við þegar/ef Jol verður rekinn, en eins og venjulega er ekki skortur á mögulegum eftirmönnum að mati veðbanka.

Klinsmann lék með Tottenham á sínum tíma og er goðsögn á White Hart Lane eftir að hafa farið á kostum með liðinu. Hann stýrði síðast landsliði Þjóðverja á HM en hefur dregið sig í hlé.

Jose Mourinho þykir líka koma til greina hjá félaginu, en Juande Ramos hjá Sevilla hefur fallið nokkuð niður listann eftir að hann lýsti því yfir að hann ætlaði að vera áfram á Spáni. 

Hér fyrir neðan fara nokkur af nöfnunum á lista veðbanka í Bretlandi og stuðullinn þar fyrir framan.

9/4 Jurgen Klinsmann

9/2 Jose Mourinho

11/2 Juande Ramos

8/1 Harry Redknapp

8/1 Mark Hughes

10/1 Fabio Capello

14/1 Ronnie Koeman

14/1 Marcello Lippi

18/1 Guus Hiddink

18/1 Graeme Souness

18/1 Paul Jewell

22/1 Gerard Houllier

22/1 Steve McClaren

28/1 Chris Hughton

50/1 Glenn Hoddle

100/1 Gary Lineker

100/1 Teddy Sheringham

500/1 Paul Gascoigne




Fleiri fréttir

Sjá meira


×