Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Um fimmtíu skjálftar hafa mælst á svæði suðvestan við Hestfjall á Suðurlandi síðan rétt fyrir hádegi í dag. Sá stærsti mældist 2,5 að stærð um hálf eitt. Innlent 12.4.2026 15:03
Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélög á Suðurlandi þar sem ekki tókst að semja um aukin rekstrarframlög. Samningurinn tryggði búsetu- og atvinnuþjónustu fyrir fatlað fólk í landshlutanum en nú tekur gildi tólf mánaða uppsagnarfrestur. Engar breytingar verða á starfseminni á meðan samningaviðræður halda áfram. Innlent 10.4.2026 19:46
Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Í Grímsnes- og Grafningshreppi virðist nú skipta máli hvaða íbúi þú ert, ekki bara hvort þú sért íbúi. Skoðun 8.4.2026 14:31
Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Leiðsögumaður varð vitni að fjölda ferðamanna gera sér ferð út á ísinn í Kerinu á Suðurlandi síðdegis í gær. Eigendur þess segjast taka málið alvarlega og að brugðist verði við, stranglega bannað sé að fara út á ísinn. Innlent 26. janúar 2026 20:02
Goddur er látinn Listamaðurinn og hönnuðurinn Guðmundur Oddur Magnússon, eða Goddur, er látinn 70 ára að aldri. Goddur var líklega þekktasti listagagnrýnandi Íslands. Síðustu árum ævi sinnar varði hann í kennslu, þar sem hann starfaði sem rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands þar til hann fór á eftirlaun. Innlent 4. janúar 2026 11:33
Banaslys á Biskupstungnabraut Einn er látinn eftir umferðarslys sem varð á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastarlundi í dag. Tveir til viðbótar voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Innlent 3. janúar 2026 17:47
Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Lögreglu barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Biskupstungnabraut, skammt sunnan við Þrastarlund, á öðrum tímanum í dag. Um að ræða árekstur tveggja bíla. Innlent 3. janúar 2026 14:57
Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Bóndi í Grímsnes- og Grafningshreppi hvetur sumarbústaðaeigendur til þess að skjóta upp flugeldum frekar heima hjá sér heldur en út í sumarbústað. Hann segir óvenju mikið hafa verið skotið upp í sveitinni á gamlársdag í ár með tilheyrandi eltingaleikjum við hrossin á bænum. Innlent 2. janúar 2026 09:57
Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Hálka var á Reykjavegi í Biskupstungum þegar bíll valt í gærkvöldi. Tveir voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans. Innlent 14. desember 2025 13:37
Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslys á Reykjavegi í Biskupstungum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 13. desember 2025 22:54
Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð, sem íbúar á Sólheimum í Grímsnesi sjá um að halda úti og taka á móti óskalögum frá hlustendum enda stoppar ekki óskalagasíminn. Innlent 10. desember 2025 21:30
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps neitar að vinna vinnuna sína Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur með samþykkt sinni frá 26. nóvember síðastliðnum ekki aðeins byggt stjórnsýslu sína á rangri fullyrðingu, heldur hefur hún einnig brotið gegn grundvallarskyldum sveitarfélaga samkvæmt sveitarstjórnarlögum með því að neita að afgreiða lögbundin erindi varðandi frístundabyggðir, nema gerðar verði lagabreytingar á Alþingi. Þetta eru stjórnsýsluleg afglöp. Skoðun 3. desember 2025 08:31
Kveikt í Rice Krispies á Borg í Grímsnesi Félagsheimilið á Borg í Grímsnesi breyttist í vísindahús um helgina þegar Háskólalestinn var þar á ferð þar sem gestir og gangandi gátu reynt á hæfileika sína í því að taka fréttaviðtöl, prófað tól og tæki sjúkraþjálfara, kynnst ólíkum heimum gervigreindar og kynnst ævintýrum fuglanna með fuglafræðingi svo eitthvað sé nefnt. Innlent 23. nóvember 2025 20:05
Kosningahugur í eigendum frístundahúsa Mikill hugur er í eigendum frístundahúsa í Grímsnes- og Grafningshreppi, sem komu saman á fundi í dag til að undirbúa málefnaskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor þar sem lögð verður áhersla á bætta þjónustu, fjölbreyttra búsetuform og náttúruvernd í sveitarfélaginu. Innlent 1. nóvember 2025 20:03
Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Mest starfsánægja er í Bláskógarbyggð, Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þetta eru niðurstöður árlegrar könnunar Gallups. Verðlaunin Sveitarfélag ársins voru veitt í gær. Sagt er frá á heimasíðu stéttarfélagsins Kjalar. Innlent 31. október 2025 12:32
Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur sett veitingastaðinn Þrastalund á sölu og stefnir á að hefja uppbyggingu annars staðar á Suðurlandi. Þá selur hann sex íbúða hús í Reykjanesbæ á sama tíma. Viðskipti innlent 30. október 2025 15:06
Hvað vilja sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi? Það er ekki tilviljun að 3.400 sumarhús eru staðsett í Grímsnes- og Grafningshreppi. Við sumarhúsafólk komum ekki bara úr bænum og yfirtókum landið. Bændur í hreppnum seldu okkur landið og hreppurinn skipulagði þessar lóðir. Skoðun 25. október 2025 18:00
Rangfærslur og hræðsluáróður meirihluta sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps í nafni lýðræðis Greinin Leikur að lýðræðinu sem þrír sveitarstjórnarmenn í Grímsnes- og Grafningshreppi birtu 23. któber á Visir.is, er dæmi um hvernig pólitískur meirihluti reynir að afvegaleiða umræðuna með því að sá tortryggni og ótta meðal íbúa. Skoðun 24. október 2025 13:16
Sennilegt að ástand Þingvallavegar hafi haft áhrif á aðdraganda banaslyss Rannsóknarnefnd samgönguslysa beinir því til Vegagerðar að endurskoða hálkuvarnir á Þingvallavegi með tilliti til vegarkaflans við Álftavatn og að Vegagerðin geri öryggisúttekt á undirbyggingu Þingvallavegs við Álftavatn. Það gerir nefndin í skýrslu um banaslys á Þingvallavegi í febrúar á þessu ári. Karlmaður á fimmtugsaldri lést í slysinu. Skýrsla rannsóknarnefndar var birt í dag. Innlent 24. október 2025 10:58
„Fyrst og fremst erum við að biðja um að fá að vera skráð í okkar hús“ Ragna Ívarsdóttir, formaður Búsetufrelsis og íbúi í Grímsnes- og Grafningshreppi, segir íbúa í frístundabyggð vilja fá leyfi til að hafa skráð aðsetur. Hún segir það ekki sinn vilja að fólk skrái sig aðeins til búsetu í sveitarfélaginu fyrir kosningar. Sveitarstjórn óttast að íbúum muni fjölga í aðdraganda kosninga og svo fækka aftur. Sveitarfélagið muni þurfa að taka á sig aukinn kostnað vegna þjónustu við íbúa sem svo flytji strax aftur burt. Innlent 23. október 2025 22:04
Titringur í hreppnum vegna lögheimilisflutninga Fulltrúar meirihlutans í Grímsnes- og Grafningshreppi segja hættu á að íbúar í hreppnum glati trausti á því sem haldi samfélaginu saman gefist fólki kostur á að hringla með lögheimilisskráningu sína korteri fyrir kosningar. Sumarhúsaeigendur í hreppnum hafa verið hvattir til að breyta skráningu sinni tímabundið nú þegar sjö mánuðir í kosningar. Innlent 23. október 2025 11:10
Leikur að lýðræðinu Á undanförnum vikum hefur myndast umræða á samfélagsmiðlum þar sem frístundahúsaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi eru hvattir til að skrá sig með „ótilgreint heimilisfang“ í sveitarfélaginu til að öðlast kosningarétt og hafa þannig áhrif á næstu sveitarstjórnarkosningar, þótt þeir búi ekki raunverulega í sveitarfélaginu. Skoðun 23. október 2025 08:03
Alvarlega slasaður eftir vélsleðaslys á Langjökli Erlendur ferðamaður slasaðist alvarlega í vélsleðaslysi á Langjökli um miðjan dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um korter í þrjú vegna slyssins og flutti manninn á bráðamóttökuna á Landspítalanum í Fossvogi. Innlent 19. september 2025 17:23
Lýsa yfir fullum stuðningi við stjórnendur Sólheima Fimm forstöðumenn á Sólheimum hafa lýst yfir fullum stuðningi við framkvæmdastjóra Sólheima, stjórnarformann þeirra og stjórn. Innlent 19. september 2025 15:03