Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Knattspyrnukonurnar í íranska kvennalandsliðinu í fótbolta sem urðu eftir í Ástralíu eftir Asíubikar kvenna eru að hefja nýtt líf fjarri sviðsljósinu. Þær dreymir samt um að snúa aftur í fremstu röð í fótboltanum. Fótbolti 18.4.2026 23:17
Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi. Erlent 18.4.2026 16:58
Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. Erlent 18.4.2026 11:26
Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Þó stríð geysi enn milli Írans og Bandaríkjanna er forseti FIFA fullviss um að Íran muni spila á HM í Bandaríkjunum í sumar. Fótbolti 16. apríl 2026 10:00
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16. apríl 2026 06:55
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. Erlent 15. apríl 2026 06:44
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. Erlent 14. apríl 2026 06:34
Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt. Erlent 13. apríl 2026 20:14
Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar. Erlent 13. apríl 2026 14:15
Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum. Erlent 12. apríl 2026 23:10
Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa lagt blátt bann við siglingum um Hormússund. Hann hefur einnig fyrirskipað sjóhernum að stöðva skip á alþjóðlegum hafsvæðum sem greitt hafa Írönum hafnartolla. Erlent 12. apríl 2026 14:08
Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri segir Írani í mun sterkari samningsstöðu en Bandaríkjamenn. Hótanir Bandaríkjaforseta um gereyðingu séu merki um mikla örvæntingu. Innlent 12. apríl 2026 12:16
Friðarviðræður runnu út í sandinn JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna. Erlent 12. apríl 2026 08:46
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11. apríl 2026 21:15
Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979. Erlent 11. apríl 2026 15:33
Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran. Erlent 10. apríl 2026 08:50
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9. apríl 2026 23:51
Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því. Erlent 9. apríl 2026 07:45
Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarískan herafla munu verða áfram við Íran þar til skilmálar „hins raunverulega samkomulags“ milli Bandaríkjanna og Íran hafa verið uppfylltir. Forsetinn er þarna að vísa til þess að deildar meiningar virðast uppi varðandi það um hvað var samið. Erlent 9. apríl 2026 07:39
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8. apríl 2026 20:08
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8. apríl 2026 17:13
Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Samkomulag um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran markar á engan hátt lausn á átökunum í Miðausturlöndum segir prófessor í sagnfræði. Það sé áhyggjuefni að Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur og beiti alvarlegum hótunum í því skyni að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald. Innlent 8. apríl 2026 13:17
Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Leiðtogar víða um heim hafa lýst ánægju sinni með hið tveggja vikna vopnahlé sem komið er á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar. Stjórnvöld í Kína sögðust í morgun myndu halda áfram að greiða fyrir viðræðum til að koma á friði og þá sögðust ráðamenn í Japan hafa væntingar um að vopnahléið myndi leiða til varanlegrar lausnar. Erlent 8. apríl 2026 09:48
Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fallist á tillögu um tveggja vikna vopnahlé í Íran með því skilyrði að stjórnvöld séu reiðubúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. Stjórnvöld í Íran segjast hafa samþykkt miðlunartillögu Pakistans. Erlent 7. apríl 2026 22:47