Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 14.2.2026 09:29
Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Danskir flugmenn flugu í gær fjórum F-35 herþotum hingað til lands og var þotunum lent í Keflavík. Flugmennirnir munu standa í æfingum með sænsku flugsveitinni sem sinnir loftrýmisgæslu hér á landi, auk þess sem þýskar herþotur verða hér einnig. Innlent 14.2.2026 07:56
Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Miklar sviptingar hafa átt sér stað hvað varðar langvarandi gott samband Bandaríkjanna og Evrópu. Ráðamenn í Evrópu spyrja sig hvort þeir geti yfir höfuð enn treyst á Bandaríkjamenn. Erlent 13.2.2026 16:08
Minnir á hvernig Hitler komst til valda Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra birti færslu á Facebook í gærkvöldi þar sem hún minnti á hvernig Adolf Hitler komst til valda á sínum tíma. Innlent 18. janúar 2026 21:25
Þjóðverjar yfirgefa Grænland Eftir aðeins tvo daga á heræfingu á Grænlandi snúa þýskir hermenn aftur heim, en þeir millilentu á Íslandi síðdegis í dag. Talsmaður hersins segir að verkefni hermannana sé lokið. Fulltrúar íslensku landhelgisgæslunnar eru um kyrrt á Grænlandi, að sögn gæslunnar. Erlent 18. janúar 2026 19:51
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18. janúar 2026 13:58
Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. Erlent 17. janúar 2026 20:45
Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Konur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss skipuleggja nú kvennaverkfall að fyrirmynd þess íslenska. Margrét Rún Guðmundsdóttir, kosningastýra Kvennalistans þáverandi og kvikmyndagerðarkona, er heiðurforseti skipulagsteymisins í Þýsklandi. Adrienne Goehler, ein skipuleggjenda, segir markmið skipuleggjenda að alheimsverkfall fari fram þann 9. mars. Hún segir þegar skipulagshópa víða um heim og auglýsir eftir einum á Íslandi. Innlent 12. janúar 2026 06:30
Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að samband Íslands og Þýskalands sé einstakt. Góð samskipti beggja landa við Bandaríkin hafi verið þeim dýrmæt í gegnum tíðina og mikilvægt sé fyrir ríkin að þau bönd verði treyst áfram, en um leið þurfi að sammælast um mikilvægi þess að alþjóðalög séu virt. Innlent 11. janúar 2026 20:00
Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur á móti Johann Wadephul, utanríkisráðherra Þýskalands, á Keflavíkurflugvelli á morgun. Hann stoppar stutt á flugvellinum á leið vestur um haf, þar sem hann á fund með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Innlent 10. janúar 2026 15:55
Aðgerðasinnar tóku rafmagnið af Berlín Hópur vinstrisinnaðra aðgerðarsinna sem kallar sig Vulkan Gruppe, eða eldfjallahópinn, hefur tekið ábyrgðina á víðtæku rafmagnsleysi sem varð í höfuðborg Þýskalands, Berlín, um helgina. Erlent 5. janúar 2026 09:07
Pylsuhundur tók að sér fimm gríslinga Í bænum Wannfried í miðju Þýskalandi hefur hundurinn Nala gengið fimm grísum í móðurstað. Grísirnir fundust móðurlausir í skógi nálægt bænum. Erlent 3. janúar 2026 16:24
Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Sólveig Arnarsdóttir hóf leiklistarferilinn á Ísland sem barnastjarna, lærði þýsku sem barþjónn til að komast inn í leiklistarskólann Ernst Buch í Berlín og sló síðan í gegn í þýsku sjónvarpi. Sólveig hefur leikið mörg stærstu hlutverk leikhúsbókmenntana hérlendis og erlendis, upplifað sigra og einnig áföll. Menning 24. desember 2025 07:00
Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Flóð ítarlegra spurninga um vopnaflutninga til Úkraínu og varnir Þýskalands frá þingmönnum öfgahægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland er sagt geta ógnað þjóðaröryggi landsins. Andstæðingar flokksins saka hann um að ganga erinda rússneskra stjórnvalda. Erlent 23. desember 2025 15:14
Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Endurreist NiceAir hefur flugtak í febrúar til þess að kanna áhugann á flugferðum milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Félagið verður rekið með öðrum hætti en fyrirrennari sinn. Höfuðstöðvar þess verða í Þýskalandi. Byrjunarverð á miða fram og til baka verður 400 evrur, eða tæplega 60 þúsund krónur. Viðskipti innlent 17. desember 2025 17:25
Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands auk átta annarra Evrópuríkja hafa heitið hernaðarlegum stuðningi við Úkraínu í samvinnu við Bandaríkin, sem er ætlað að koma í stað 5. greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins. Erlent 16. desember 2025 06:47
Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Bandaríkjamenn hafa farið fram á það við Úkraínumenn að þeir gefi eftir það landsvæði sem þeir stjórna enn á Donbas-svæðinu svokallaða og segja að slíkt sé skilyrði fyrir friðarviðræðum við Rússa. Þá þykir orðið ólíklegt að hægt verði að nota frystar eigur Rússa í Belgíu til að fjármagna lán handa Úkraínumönnum og er það meðal annars vegna þrýstings frá Washington DC. Erlent 15. desember 2025 14:32
Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn reiðubúna til að falla frá fyrirætlunum sínum um að ganga í Atlantshafsbandalagið, gegn pottþéttum öryggistryggingum. Erlent 15. desember 2025 06:27
Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Lögreglan í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um að fremja hryðjuverk á jólamarkaði. Erlent 14. desember 2025 09:59
Ætlar að endurreisa Niceair Þýskur athafnamaður hyggst endurreisa ferðaskrifstofuna Niceair og hefur af því tilefni boðað til blaðamannafundar í flugstöðinni á Akureyri í næstu viku. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Niceair hefur mikla trú á verkefninu enda Norðlendingar komnir á bragðið með að fljúga til Evrópu án viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 10. desember 2025 11:10
Afdráttarlaus stuðningur við Úkraínu og aukinn þrýstingur á Rússa Evrópuleiðtogar lýstu yfir afdráttarlausum stuðningi við Úkraínu og Vólódimír Selenskí forseta á fundi í Downing-stræti í gær en Selenskí sætir nú miklum þrýstingi frá Bandaríkjunum um að láta Rússum eftir stóran hluta landsins. Erlent 9. desember 2025 06:53
Segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er mættur til Englands, þar sem hann fundar með Keir Starme forsætisráðherra Bretlands, Emmanuel Macron, forseta Frakklands og Friedrich Merz kanslara Þýskalands. Selenskí segir að taka þurfi mikilvægar ákvarðanir. Erlent 8. desember 2025 14:18
Biðla til Belga en tvær tillögur á borðinu Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er sögð hafa lagt fram tvær tillögur um hvernig Evrópuríkin gætu aðstoðað Úkraínumenn við að fjármagna baráttu sína gegn Rússum næstu tvö árin. Erlent 5. desember 2025 09:11
Vöruðu við því að Bandaríkin gætu svikið Úkraínu og Evrópu Ráðamenn í Evrópu bera lítið traust til erindreka Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í tengslum við viðræður Bandaríkjamanna við Rússa um mögulegan frið í Evrópu. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varaði aðra þjóðarleiðtoga og embættismenn í Evrópu við því á dögunum að ráðamenn í Bandaríkjunum gætu á endanum svikið Úkraínu og Evrópu. Erlent 4. desember 2025 19:03