Kína

Kína

Höfuðborg: Peking. Mannfjöldi: 1.409,0 milljónir (2025). Flatarmál: 9.596.961 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Það sem Marco Ru­bio virðist ekki skilja

Samstaða meðal einræðisríkja er djúpstæðasta ógnin sem Bandaríkin og bandamenn þeirra, bæði í Evrópu og á Indó-Kyrrahafssvæðinu, standa frammi fyrir. Engu að síður var hvorki minnst einu orði á Rússland né Kína í ræðu Rubio.

Umræðan
Fréttamynd

„Þá er Ís­land kannski næsti biti“

Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess. 

Innlent
Fréttamynd

Sendi Trump tóninn vegna Taí­van

Xi Jinping og Donald Trump, forsetar Kína og Bandaríkjanna, áttu langt símtal í gær þar sem þeir eru sagðir hafa rætt hin ýmsu málefni sem snúa að samskiptum ríkjanna. Meðal annars ræddu þeir stöðuna í Íran og í Úkraínu og væntanlega heimsókn Trumps til Kína í vor en forsetarnir virðast ósammála um helsta málefni viðræðnanna og tón þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Einungis einn her­foringi eftir í mið­stjórn kín­verska hersins

Xi Jinping, forseti Kína, hefur staðið fyrir miklum hreinsunum innan hersins. Margir háttsettir herforingjar hafa verið sviptir embættum og sakaðir um ýmis brot. Xi skipaði þá flesta sjálfur í stöður þeirra en síðan þá hafa þeir verið settir til hliðar og rannsakaðir fyrir hin ýmsu brot eins og spillingu.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng.

Erlent
Fréttamynd

Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára

Í Kína fæddust 7,92 milljónir barna í fyrra. Það er 1,62 milljónum færri börn en fæddust árið 2024 og markar það um sautján prósenta fækkun. Samkvæmt opinberum tölum í Kína hefur fæddum börnum fækkað á hverju ári mörg ár í röð.

Erlent
Fréttamynd

Kallar eftir upp­lýsingum um kín­verska strætis­vagna á Ís­landi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir svörum frá innviðaráðherra um strætisvagna á Íslandi frá kínverska framleiðandanum Yutong. Fyrirspurnina leggur Þórdís fyrir ráðherrann á Alþingi, í framhaldi af fréttum frá Norðurlöndum þar sem bent hefur verið á möguleika þess að framleiðandinn kínverski gæti haft áhrif á virkni vagnanna með rafrænum hætti. Þórdís vill vita hversu margir vagnar frá framleiðendanum eru í umferð hjá hinu opinbera og hvort stjórnvöld hér á landi hafi með einhverjum hætti brugðist við.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja banda­ríska fánann á Græn­land

Erlingur Er­lings­son hernaðar­sagn­fræðingur segir allar yfir­lýsingar Donald Trump, for­seta Bandaríkjanna, um Græn­land og Venesúela fjar­stæðu­kenndar og for­sendur hans líka. Hann segir að frá her­fræði­legu sjónar­miði sé í raun ein­falt fyrir Bandaríkin að taka Græn­land, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauð­syn­legt og í raun aðeins hégómi „gamla fast­eigna­bra­skarans frá New York“ að vilja það.

Innlent
Fréttamynd

Sósíal­istar líta til harðstjórnarríkja sem fyrir­mynda

Forsvarsmenn Sósíalistaflokksins hafa ausið ríki með gerræðislegt stjórnarfar eins og Kína, Norður-Kóreu og Rússland lofi á undanförnum misserum. Formaðurinn segir það bull að Ísland sé hluti af lýðræðisríkjum í heiminum og að „sjúkir“ fjölmiðlar ljúgi upp á óvini Bandaríkjastjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Um­kringdu Taí­van og æfðu lokanir hafna

Kínverjar standa nú í umfangsmiklum heræfingum umhverfis Taívan, þar sem þeir líkja eftir lokunum helstu hafna, árásum á skotmörk á sjó og vörnum gegn inngripum þriðju aðila. Yfirvöld í Kína segja um að ræða viðvörun til „aðskilnaðarsinna“ í Taívan.

Erlent
Fréttamynd

Trump vill til tunglsins fyrir 2028

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gaf í gær út tilskipun um að koma mönnum til tunglsins fyrir 2028 og reisa þar varanlega bækistöð fyrir 2030. Var það nokkrum klukkustundum eftir að Jared Isaacman tók formlega við sem nýr yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), eftir að Trump hafði áður dregið tilnefningu hans til baka.

Erlent
Fréttamynd

Þrettán nýir raf­knúnir strætis­vagnar teknir í notkun

Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar verða á næstunni teknir í notkun hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu. Almenningsvagnar Kynnisferða og Hagvagnar sjá um akstur vagnanna en samið var við félögin í fyrra. Í tilkynningu kemur fram að allur strætófloti fyrirtækjanna verður orðinn rafknúinn árið 2029.

Innlent