Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Samúel Karl Ólason skrifar 14. október 2026 21:31 Erik Prince á ráðstefnu Repúblikanaflokksins í Texas í mars. Hann hefur stutt Donald Trump í gegnum árin. Getty/Brandon Bell Málaliðar á vegum Erik Prince, stofnanda málaliðafyrirtækisins Blackwater, lentu í umsátri í Austur-Kongó í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tuttugu málaliðar og hermenn féllu eða særðust í umsátrinu og þar á meðal maður sem barðist í UFC.
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á Haítí og víða um Afríku. Umsátrið átti sér stað í Suður-Kivu-héraði í Austur-Kongó þann 17. september, samkvæmt heimildum Reuters. Þá sátu uppreisnarmenn M23 fyrir hópi málaliða og stjórnarhermanna en að minnsta kosti sjö hermenn dóu og einn málaliði sem var áður í sérsveitum Nýja-Sjálands. Tim Kennedy, sem keppti í blönduðum bardagalistum í UFC til ársins 2016, særðist í umsátrinu. Kennedy, sem heldur einnig úti vinsælu hlaðvarpi og hefur marga fylgjendur á samfélagsmiðlum, var fluttur á Walter Reed-hersjúkrahúsið í Washington DC. Samkvæmt heimildum Reuters er þetta í fyrsta sinn sem málaliðahópurinn verður fyrir mannfalli í Austur-Kongó. Þar hafa starfsmenn Victus verið að aðstoða stjórnarherinn gegn M23 og telja heimildarmenn fréttaveitunnar að her Rúanda hafi aðstoðar uppreisnarmennina við umsátrið. Fjöldamorð í Bagdad Prince hefur um árabil verið verulega umdeildur maður. Hann var á árum áður svokallaður „Selur“ í sérsveitum sjóhers Bandaríkjanna. Eftir það stofnaði hann málaliðahópinn Blackwater árið 1996 en sá hópur starfaði á vegum Bandaríkjanna í bæði Afganistan og Írak. Hópurinn varð verulega alræmdur árið 2007 þegar fjórir málaliðar myrtu fjórtán óvopnaða Íraka á Nisour-torgi í Bagdad. Á næstu árum hætti Prince hjá fyrirtækinu og það var selt til fjárfesta. Það er nú rekið undir Academi. Prince hefur stutt Donald Trump og Betsy DeVos, sem var menntamálaráðherra Bandaríkjanna á fyrra kjörtímabili Trumps, er systir Prince. Áður en Trump lét af embætti í byrjun árs 2001 náðaði hann málaliðana fjóra sem myrtu fólkið á Nisour-torgi. Sjá einnig: Náðar stuðnings- og stríðsglæpamenn New York Times segir að Prince hafi á undanförnum árum staðið í umfangsmikilli leit að viðskiptatækifærum í Afríku og þá sérstaklega í ríkjum sem glíma við mikla óöld og óreiðu en eru rík af náttúruauðlindum. Á sama tíma hefur ríkisstjórn Trumps verið að leita leiða fyrir bandarísk fyrirtæki til að komast inn í arðbæra námuvinnslu í Austur-Kongó. Kínverjar eru þar umsvifamiklir en Bandaríkjamenn vilja komast meira inn í vinnslu sjaldgæfra málma eins og kóbalts, sem vinna má í austurhluta Austur-Kongó. Fregnir hafa einnig borist af því að Prince hafi átt í viðræðum við ríkisstjórnir á Sahel-svæðinu, um að koma þeim til aðstoðar í baráttunni við vígahópa. „Ofbeldi til sölu“ Stjórnarher Austur-Kongó hefur staðið í átökum við uppreisnarmenn M23, sem njóta stuðnings Rúanda. Herinn hefur þó notið stuðnings málaliða frá Rúmeníu og fyrirtækja í eigu Prince, auk þess sem ísraelskir herþjálfarar hafa leiðbeint hermönnum eins og fram kemur í skýrslu frá svissnesku hugveitunni Global Initiative Against Transnational Organised Crime (GI-TOC), sem birt var í síðasta mánuði. Skýrslan ber titilinn „Ofbeldi til sölu“. Þá hafa áður borist fregnir af veru rúmenskra málaliða í Austur-Kongó og þá sérstaklega þegar meðlimir M23 lögðu undir sig landsvæði í austurhluta landsins. Þá gáfust fjölmargir málaliðar frá Rúmeníu upp fyrir hermönnum frá Rúanda. Minna hefur farið fyrir aðkomu Prince og málaliða hans í átökunum. Ver námuvinnslu og safnar sköttum Í skýrslu hugveitunnar segir að umsvif Prince í Afríku hafi aukist á undanförnum árum. Þar teygi fyrirtæki hans nú anga sína til ýmissa greina eins og námuvinnslu og innviðasmíði. Málaliðar hans hafa haldið til á flugvelli í Kalemie, sem er bær í austurhluta Austur-Kongó. Þar er hann meðal annars með drónaflugmenn sem hann hefur ráðið frá Kólumbíu og Úkraínu sem gera árásir gegn M23 og fjölda annarra víga- og glæpahópa á svæðinu. Þá er hann sagður hafa gert fimm ára samning við fjármálaráðuneyti Austur-Kongó árið 2024 um að hann aðstoði yfirvöld við að verja námuvinnslu í austurhluta landsins, bæta skattheimtu og draga úr smygli á málmum og öðrum hráefnum úr landi. Skattheimtuátakið er leitt af manni sem var áður í frönsku útlendingahersveitinni og er hann sagður með um hundrað manns í vinnu. NYT hefur eftir manni sem starfar fyrir Prince að markmiðið sé að draga úr spillingu og arðráni glæpasamtaka og kínverskra námufyrirtækja. Heimildarmenn GI-TOC segja að samningurinn innihaldi einnig tilboð frá Prince um að tryggja yfirráð stjórnvalda yfir Norður- og Suður-Kivu héruðum. Það á hann að hafa sagst geta gert með því að koma að þjálfun hermanna á svæðinu, beita drónum, þyrlum og flugvélum og fjármagna það með hagnaði af námuvinnslu. Vera málaliða hans í Austur-Kongó er talin mögulega tengjast samkomulagi sem yfirvöld í landinu gerðu við ríkisstjórn Donalds Trump í desember 2025. Undir það var skrifað samhliða friðarsamkomulagi sem ríkisstjórn Trumps kom að. Átökin í austurhluta Austur-Kongó eru ein af þeim mörgu átökum sem Trump heldur því fram að hann hafi stöðvað. Samkomulagið snýr að því að Bandaríkjamenn fái aðgang að sjaldgæfum málum sem finna má í jörðinni í Austur-Kongó. Reuters hefur þó eftir talsmanni utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna að þar á bæ hafi enginn samningur verið gerður við Prince í tengslum við Austur-Kongó. NYT hefur eftir bandarískum embættismönnum að yfirvöld komi ekki nærri starfsemi Prince í Austur-Kongó. Það að málaliðar Prince hafi fengið læknismeðferð á bandarísku hersjúkrahúsi hefur þó vakið athygli. Sjaldgæft er að aðrir en starfandi hermenn fái aðhlynningu þar. Enn lítill árangur Í grein NYT segir að verkefni Prince í Afríku hafi oftar en ekki farið illa. Málaliðar hans þurftu til að mynda að flýja frá Líbíu árið 2019, eftir að þeir fóru að deila við stríðsherra sem réði þá. Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig sakað hann um að brjóta gegn vopnasölubanni í Sómalíu, svo eitthvað sé nefnt. Einn heimildarmaður miðilsins, rannsakandi hugveitunnar Atlantic Council sem starfaði áður sem málaliði, sagði að í gegnum árin hefði Prince ekki einu sinni náð markmiðum sínum í Afríku. Því litu aðrir málaliðar á svæðinu niður á Prince og hans fólk.
Austur-Kongó Rúanda Hernaður Bandaríkin Donald Trump Kína Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira