Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikill áhugi á Gauragangs-myndinni Fjöldi ungmenna mætti í áheyrnarprufur sem haldnar voru fyrir kvikmyndina Gauragangur sem framleiðslufyrirtækið Zik Zak gerir. Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson en hann gerði einmitt metsölumyndina Astrópíu um árið. Gauragangur er sem kunnugt er byggð á bók Ólafs Hauks Símonarsonar og fjallar um glímu Orms Óðinssonar við hin erfiðu unglingsár. 11.5.2009 04:45
Svíar kaupa goðaheim Friðriks „Já, Svíar ákalla þrumuguðinn Þór. Samningurinn einn og sér bjargar ekki gjaldeyrismálum þjóðarinnar en þetta brýtur ísinn erlendis og gefur byr í seglin, bæði hvað varðar frekari samninga erlendis og eins dreifingu myndarinnar,“ segir Pétur Már Ólafsson útgefandi. 11.5.2009 04:00
World Class sú besta í heimi Líkamsræktarstöðin World Class í Laugum er sú besta í öllum heiminum að mati hins virta dálkahöfundar Elliott Hester. Í grein í breska dagblaðinu The Morning Star segist hann hafa heimsótt margar líkamsræktarstöðvar um allan heim, þar á meðal í Svíþjóð og Singapúr, en aldrei hafi hann kynnst eins miklum gæðum og á Íslandi. „Af öllum þeim líkamsræktarstöðvum sem ég hef heimsótt á 27 ára ferðalögum mínum þá er World Class-salurinn og Laugar Spa á Íslandi í sérflokki,“ skrifar hann. „Þegar ég gekk inn í líkamsræktarsalinn leið mér eins og James Bond sem gæti valið úr fjölda háleynilegra vopna. Ég horfði inn í rauðan augnskannann og var tilbúinn til að taka á því og láta dekra við mig.“ 11.5.2009 03:00
Star Trek vinsælust Fyrstu tölur um aðsókn að kvikmyndahúsum vestanhafs benda til þess að nýja myndin í Star Trek myndabálknum hafi geislað til sín ríflega 76 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur meira en 9,5 milljörðum íslenskra króna í miðasölu um helgina. 10.5.2009 20:15
Fjölmargir vilja leika í Gauragangi Meira en 500 manns mættu í opnar leikaraprufur sem haldnar voru á skemmtistaðnum Óliver í dag. Prufurnar eru fyrir kvikmyndina Gauragang í leikstjórn Gunnar Björns Ólafssonar, sem leikstýrði kvikmyndinni Astrópíu. 10.5.2009 19:07
Minna prjál á Cannes Það verður ögn minni glansi á Cannes kvikmyndahátíðinni í Frakklandi þetta árið í ljósi alheimskreppunnar. Færri veislur verða og minni í sniðum auk þess sem nær engin eftirspurn er eftir leigu á lúxussnekkjum fyrir stjörnurnar og fyrirtæki sem vilja selja og kaupa kvikmyndir á hátíðinni. Stóru Hollywood kvikmyndaverin hafa einnig ákveðið að kynna stór sumarsmellina sína þetta árið annars staðar og spara þannig kostnað en Cannes hefur hin síðari ár verið vettvangur umfangsmikilla kynninga á þeim myndum sem eiga að laða gesti í kvikmyndahús um allan heim yfir sólríka sumarmánuðina. 10.5.2009 17:45
Gervaise aftur í uppistand Breski grínarinn Ricky Gervais, sem slegið hefur í gegn með gamanþáttunum Office og Extras, hefur ákveðið að grípa hljóðnemann og skella sér aftur í uppistandið. Hann kynnti nú rétt fyrir helgi áform um að ferðast um England í haust og troða upp á sem flestum stöðum. Hann mun skemmta í Manchester, Newcastle, Sheffield og Glasgow í Skotlandi. Er búist við húsfylli á flestum ef ekki öllum stöðum. 10.5.2009 15:05
Sundstjarna í rúminu með strippara Enn og aftur er bandaríski sundkappinn Michael Phelps kominn í fjölmiðla fyrir eitthvað allt annað sundiðkunn. Nú hefur fatafellan Theresa White stigið fram og sagt að sundkappinn hafi sofið hjá sér og vinkonu sinni þegar hann fagnaði að hafa setið af sér þriggja mánaða keppnisbann í vikunni. 10.5.2009 11:31
Mia Farrow hætt í hungurverkfalli Bandaríska leikkonan Mia Farrow hefur hætt hungurverkfalli sínu en læknar hafa áhyggjur af heilsu hennar. Leikkonan er 64 ára gömul. 9.5.2009 20:45
Tónleikum Amy Winehouse hætt vegna rigningu Breska söngkonan Amy Winehouse kom fram í fyrsta sinn um nokkurt skeið á tónlistarhátíð í gær á karabísku eyjunni St. Lucia. Tónleikar söngkonunnar sem fóru fram undir berum himni urðu þó styttri en í upphafi var gert ráð fyrir vegna mikillar rigningar. Söngkonan reyndi í fyrstu að halda sínu striki en játaði sig þó að lokum sigraða, segir Chris Goodman talsmaður söngkonunnar. 9.5.2009 18:15
Jóhannes Steinn matreiðslumeistari ársins Jóhannes Steinn Jóhannesson hjá veitingastaðnum VOX var í dag krýndur matreiðslumeistari ársins á sýningunni Ferðalög og frístundir sem stendur yfir í Laugardalshöll. Mikill fjöldi gesta hefur lagt leið sína í Laugardalinn í dag og í gær til að kynna sér það nýjasta sem ferðaþjónustan hefur upp á að bjóða. Sýningin verður einnig opin á morgun, sunnudag. 9.5.2009 17:19
Clooney jók áhorfið á Bráðavaktina Eftir 15 ára samfellda sigurgöngu var lokaþáttur bráðamóttökusápunnar Bráðavaktarinnar, eða ER, nýverið sýndur á bandarísku NBC-sjónvarpsstöðinni. Í lokaþáttaröðinni komu gömul andlit úr þáttunum og þar á meðal var stórstjarnan George Clooney. 9.5.2009 14:45
Idol-Lísu langar til að semja eigin tónlist „Mig langar að syngja eins mikið og ég get og jafnvel að semja mína eigin tónlist,“ segir Guðrún Lísa Einarsdóttir, oftast kölluð Lísa, sem féll úr Idol-söngvakeppninni í undanúrslitaþætti á Stöð 2 í gærkvöldi. 9.5.2009 11:45
Linda Pé hógvær í viðtali við Times Linda Pétursdóttir, fyrrum Ungfrú heimur og framkvæmdastjóri Baðhússins, fór á kostum í viðtali við breska stórblaðið Times í vikunni. 9.5.2009 09:00
Lloyd Webber veðjar á íslenska lagið Höfundar íslenska Eurovision-lagsins hafa ekki hist síðan þeir sömdu Is it true? í London 2004. Nú, fimm árum seinna, eru þeir sameinaðir í þeirri trú að lagið eigi eftir að vinna hug og hjörtu Evrópubúa. 9.5.2009 08:45
Hreppti þúsund dollara skólastyrk á þekktri hátíð „Þetta er gífurlega mikill heiður. Þessu fylgja verðlaun sem hljóða upp á hvorki meira né minna en tíu þúsund dollara skólastyrk í kvikmyndaskóla í Nashville,“ segir Árni Beinteinn, hinn ungi og bráðefnilegi kvikmyndagerðarmaður með meiru. 9.5.2009 08:30
Varaþingmaðurinn Ari í vanda Ari Matthíasson varaþingmaður og leikari á í krísu. Um leið og hann framleiðir og leikur í sýningunni Við borgum ekki er það ekkert endilega hans pólitíska skoðun að fólk eigi að hlaupa frá skuldbindingum sínum. 9.5.2009 08:15
De Niro á Kjarvalsstöðum Robert De Niro verður á meðal listamanna á sýningunni Frá Unuhúsi til Áttunda strætis sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum 15. maí. 9.5.2009 08:00
Sendir fótboltaeiginkonum tóninn Breska poppsöngkonan Lily Allen fær væntanlega ekki ársmiða á leiki Chelsea í framtíðinni né verður hún boðin sérstaklega velkomin á leiki enska landsliðsins á Wembley, því yfirlýsingar hennar í franska knattspyrnutímaritinu SoFoot bera þess glöggt merki að hún sé ekki par hrifin af menningunni í kringum enska knattspyrnu. 9.5.2009 07:00
Sultur Þess er víða minnst um þessar mundir að helsti skáldjöfur Norðmanna, Knut Hamsun, fæddist fyrir 150 árum. Hluti dagskrár af þessu tilefni hér er sýning á kvikmynd Henning Carlsen, Sulti, sem gerð er eftir samnefndri skáldsögu Hamsun sem kunn er í íslenskri þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi. 9.5.2009 06:30
Svavar á fimm Síðasta listaverkauppboðið á þessu vori á vegum Gallerís Foldar verður haldið í húsakynnum þess við Rauðarárstíg á mánudagskvöld. Fjöldi verka hefur þegar verið skráður á uppboðið og verða þau til skoðunar um helgina á Rauðarárstígnum allt fram til þess að uppboðið hefst á mánudag kl. 18.15. 9.5.2009 06:00
Furða, fræði, framkvæmd Þeir kalla hana Fræði og framkvæmd, eina af yngri námsbrautunum í LHÍ sem hóf göngu sína haustið 2005 við leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Nú í vor lýkur annar árgangur brautarinnar námi og frá og með deginum í dag byrja nemendur að sýna lokaverkefni sín á dreifðum sýningarstöðum víða um höfuðborgina. Lýkur sýningartörninni ekki fyrr en 17. maí. 9.5.2009 06:00
Ókláruð plata sett á netið Fyrstu plötu Jónsa í Sigur Rós og og kærastans Alex Somers undir yfirskriftinni Riceboy Sleeps hefur verið lekið á netið, rúmum tveimur mánuðum fyrir útgáfudag. 9.5.2009 05:00
Stórstjörnur kveðja Leno Stórstjörnurnar Mel Gibson og Arnold Schwarzenegger hafa samþykkt að vera á meðal síðustu gesta Jay Leno áður en hann hættir með spjallþátt sinn The Tonight Show. Prince, Lyle Lovett og Billy Crystal verða einnig á meðal stjarnanna sem heimsækja Leno síðustu viku hans í embætti, sem hefst 25. maí. 9.5.2009 04:45
Meistarauppeldi Það styttist í umsóknarfresti fyrir þá sem vilja sækja um nám til meistaraprófs í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands en boðið er upp á það í annað sinn á komandi vetri. 9.5.2009 04:00
Keypti sér lúxusvillu Breska söngkonan Leona Lewis hefur fest kaup á mikilli lúxusvillu í Hollywood. Höllin kostaði 1,5 milljónir punda, eða rúmar 190 milljónir íslenskra króna. 9.5.2009 03:00
Fjörugt fimmtudagskvöld í Reykjavík Tveir skemmtistaðir í miðborg Reykjavíkur frumsýndu nýtt útlit á fimmtudagskvöldinu. Þetta voru Thorvaldsen og Íslenski barinn þar sem Kaffibrennslan var áður til húsa. Austurvöllur iðaði af lífi og ljóst að Íslendingar eru smám saman að jafna sig eftir að svæðið logaði í óeirðum í kringum búsáhaldabyltinguna frægu. Ljósmyndari Fréttablaðsins var á staðnum og drakk í sig stemninguna, sem reyndist ósvikin. 9.5.2009 02:30
Horfði ekki á fréttir Christian Bale hefur upplýst að hann hafi ekki horft á eina einustu frétt um dauða mótleikara síns, Heath Ledger. Þeir léku saman í The Dark Knight þar sem Bale var Leðurblökumaðurinn en Ledger Jókerinn. Bale vildi að eigin sögn ekki láta vanvita eyðileggja þá minningu sem hann hafð af leikaranum. 9.5.2009 02:00
Bar fram bónorðið Leik- og söngkonan Jennifer Hudson hefur beðið kærasta sinn David Otunga um að giftast sér, fimm mánuðum eftir að hann bað hennar. 9.5.2009 01:30
Gat ekki setið kyrr Sacha Baron Cohen lenti í óheppilegu atviki við tökur á nýjustu mynd sinni, Bruno. Cohen vildi ekki raka líkamshár sín af og ákvað í staðinn að lita þau. Þetta plan gekk ekki upp því Cohen fékk útbrot um allan líkamann. „Hann gat ekki setið kyrr í þrjá daga,“ sagði heimildarmaður The Sun. 9.5.2009 01:00
Hrafna og Anna Hlín áfram í úrslit - Lísa kosin út Anna Hlín og Hrafna halda áfram í úrslitaþátt Idolsins en Lísa datt út. Þátturinn var gríðarlega spennandi en júróvisjón lög voru sunginn. 8.5.2009 21:52
Jack Bauer ákærður fyrir líkamsárás Íslandsvinurinn Kiefer Sutherland, sem meðal annars leikur Jack Bauer í sjónvarpsþáttunum 24, var handtekinn á fimmtudag og ákærður fyrir að ráðast á og skalla annan mann í teiti í New York. 8.5.2009 16:03
Carreras hættur að syngja óperur Spænski tenórinn Jose Carreras tilkynnti í dag að hann væri hættur að syngja í óperuuppfærslum. Carreras, sem er 62 ára, varð heimsfrægur sem einn tenóranna þriggja þegar hann söng með Luciano Pavarotti og Placido Domingo. 8.5.2009 13:51
Hvaða stjarna viltu að passi börnin þín? Bandarísk heimasíða sem fjallar um fjölskyldumál gerði könnun á því hvaða stjörnur almenningur vildi helst fá til þess að passa börnin fyrir sig. 8.5.2009 13:21
Aukagreiðsla fyrir stór brjóst Verslunarkeðjan Marks&Spencer selur fjörutíu og fimm brjóstahaldara á mínútu. Yfir tuttugu milljónir á ári hverju. 8.5.2009 13:00
Kjóll Jóhönnu Guðrúnar vakti athygli á stóra sviðinu Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún mun klæðast í forkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld vakti mikla athygli á æfingum í Moskvu í gær. Mikil leynd hefur hvílt yfir honum en það er fatahönnunartvíeykið Andersen & Lauth sem á heiðurinn að honum. 8.5.2009 09:00
Harry Potter á stefnumóti með klæðskiptingi Galdrastrákurinn Harry Potter, eða öllu heldur leikarinn, Daniel Radcliffe sást á dögunum snæða með klæðskiptingnum Lady J. Hún - eða hann - er þekktust/þekktastur fyrir að herma á sérlega sannfærandi hátt eftir kántrí goðsögninni Dolly Parton. 7.5.2009 20:01
Borgfirðingaball á Nasa Föstudagskvöldið næstkomandi á NASA við Austurvöll ætla brottfluttir, aðfluttir og ófluttir BORGFIRÐINGAR að koma saman og skemmta sér. 7.5.2009 14:15
Leoncie reynir fyrir sér í pólitík Indverska prinsessan Leoncie er með mörg járn í eldinum, eins og endranær. Myndband hennar var sýnt í listasetrinu Scandinavia House í New York og hlaut dynjandi lófaklapp og þá hyggst hún feta nýjar brautir. 7.5.2009 09:00
Peter Stormare til liðs við Anitu Briem Sænski stórleikarinn Peter Stormare hefur bæst í fríðan leikhóp bandarísku myndasögumyndarinnar Dead of the Night. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá er íslenska leikkonan Anita Briem þar í einu aðalhlutverkanna ásamt Ofurmenninu Brandon Routh og sjónvarpsstjörnunni Taye Diggs. 7.5.2009 08:45
Trukkur keyrði á Jóhönnu Guðrúnu í miðbæ Moskvu „Við vorum bara á leiðinni á japanskt veitingahús í miðbænum og ætluðum að fá okkur sushi. Þegar við vorum um það bil að stíga út úr bílnum kom bara einhver trukkur og keyrði aftan á okkur,“ segir María Björk, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar, Eurovison-stjörnu Íslendinga. 7.5.2009 08:15
135 taka þátt í Þorskastríði Alls sendu 135 flytjendur inn efni í tónlistarkeppnina Þorskastríðið. Þátttakan var framar björtustu vonum útgáfufyrirtækisins Cod Music því á síðasta ári sendu 102 flytjendur inn lög. Yngstu tónlistarmennirnir sem tóku þátt í ár eru 12 og 13 ára en elsti keppandinn er 56 ára. 7.5.2009 08:00
Fílahjörðin rumskar í kvöld Tónleikar með þessu athyglisverða og hljóðláta nafni verða í Leikhúskjallara Þjóðleikhúss til styrktar Steingrími Eyfjörð Guðmundssyni hljóðmanni, sem einnig er þekktur sem Hawaii-gítarundrið (KRAMDA HJARTAÐ), kvikmyndatónskáld, lagahöfundur, hagyrðingur, kórstjóri og svo ótal margt fleira. 7.5.2009 07:45
Boðið á námskeið Þjóðleikhúsið hefur frá upphafi hrunsins sýnt markverða viðleitni til að sinna þeim sem misst hafa atvinnu. Leikhúsið bauð atvinnulausum snemma upp á sérstök kjör á miðum og nú bætir það um betur með opnum námskeiðum fyrir atvinnulausa: dagana 12.-13. maí næstkomandi. Leikarar Þjóðleikhússins munu leiða tvö stutt námskeið sem hafa það helst að markmiði að gleðja sálina, efla jákvætt hugarfar og næra andann. 7.5.2009 07:30
Stieg Larsson-myndin of dýr fyrir Ísland „Þessir aðilar settu upp verð sem við höfum bara aldrei séð áður. Við gerðum meira að segja ráð fyrir því í okkar kostnaðaráætlun að myndin myndi ná hæstu hæðum í miðasölu og teygðum okkur eins langt og við gátum en það dugði einfaldlega ekki til,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu. 7.5.2009 07:15