Leoncie reynir fyrir sér í pólitík 7. maí 2009 09:00 Kannar jarðveginn fyrir framboð Leoncie ætlar hugsanlega að bjóða fram krafta sína í indverskum stjórnmálum sem löngum hafa verið æði skrautleg og blóði drifin.Mynd/Páll Bergman
Indverska prinsessan Leoncie er með mörg járn í eldinum, eins og endranær. Myndband hennar var sýnt í listasetrinu Scandinavia House í New York og hlaut dynjandi lófaklapp og þá hyggst hún feta nýjar brautir. „Jú, þetta er rétt, ég hef alltaf haft mikinn áhuga á indverskum stjórnmálum og það komu að máli við mig menn frá nýju stjórnmálaafli og vildu fá mig til liðs við sig,“ segir Leoncie. Hún telur sig hafa mikið fram að færa í indverskum stjórnmálum sem að hennar sögn hafa einkennst af viðhorfum gamalla karla. Leoncie og eiginmaðurinn Victor hafa því verið á Indlandi að undanförnu og kannað jarðveginn fyrir framboð indversku prinsessunnar. Indland er fjölmennasta lýðræðisríki í heimi og stjórnmálin þar hafa oft verið æði skrautleg og blóði drifin. En stjórnmálabaráttan yrði bara smá hliðarspor frá ástríðu Leoncie, sem er og verður alltaf tónlistin. Nýverið var myndband hennar Love Messages from Overseas sýnt í listamiðstöðinni Scandinavia House í New York og ekki var að sökum að spyrja, salurinn hreinlega ærðist af fögnuði. „Mér skilst að áhorfendur hafi risið úr sætum sínum og það ku ekki gerast oft þarna,“ segir Leoncie og upplýsir jafnframt að myndbandið muni væntanlega ferðast víðar um Ameríku. Leoncie og Victor hafa komið sér vel fyrir í Essex, festu nýverið kaup á nýju húsi sem Leoncie segist engan veginn standast íslensk gæði. „Nei, húsin hérna í Bretlandi eru öll skökk, það er eins og þeir viti ekki hvað hallamál er,“ segir hún og hlær, bætir því við að það séu ekki bara hin vel byggðu híbýli sem hún sakni frá Íslandi, hana þyrstir í gott vatn og harðfisk. „Enska vatnið er algjört sull, ódrekkandi.“ Hún upplýsir jafnframt að þau skötuhjú hafi látið af allri áfengisdrykkju, borði ekki rautt kjöt heldur bara fisk og grænmeti og það sé þegar farið að skila sér, Victor hafi grennst til muna og þeim líði mun betur á bæði líkama og sál. - fgg
Mest lesið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Bylgjulestin fer norður á morgun Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira