Fleiri fréttir

Brasilíska þjóðin á barmi taugaáfalls

Brasilíska þjóðin er harmi slegin og á barmi taugaáfalls eftir leikinn við Þjóðverja í gær; fólk grét á götum úti og svo tók reiðin völdin og þurfti víða að kalla til óeirðalögreglu.

Tugir liggja í valnum eftir loftárásir

Spennan heldur áfram að magnast á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á Gazasvæðinu, en tuttugu og sjö liggja nú í valnum og yfir hundrað eru særðir eftir hernaðaraðgerðir Ísraelsmanna í dag.

Abdullah lýsir yfir sigri í Afganistan

Abdullah Abdullah, forsetaframbjóðandi í Afganistan, hefur lýst yfir sigri í forsetakosningum landsins þrátt fyrir fyrstu tölur kjörstjórnar.

Segja búrkubannið skilyrði sáttar

Mannréttindadómstóll Evrópu telur frönsk lög sem banna notkun búrkna og níkab, blæja sem hylja andlit alveg utan augna, á almannafæri ekki vera brot á mannréttindum. Lögin eru sögð glæpavæða klæðnað kvenna og geta haft meiriháttar áhrif á trú- og tjáningarfrelsi.

Neoguri nálgast Japansstrendur

Hundruð þúsunda manns eru hvött til að yfirgefa heimili sín og leita skjóls en gríðarlegur stormur nálgast nú Japanseyjar.

Maðurinn sem lést á Benidorm íslenskur

Íslendingurinn er sagður hafa kastast úr rússíbana í skemmtigarðinum Terra Mitica. Rússíbaninn kallast Inferno og fer hann á allt að 96 kílómetra hraða á klukkustund. Hann er 25 metra hár og snýst í 360 gráður á 60 kílómetra hraða. Talið er að öryggisbeltið sem notað var hafi verið gallað og ekki virkað sem skyldi.

Ghani næsti forseti Afganistans

Ashraf Ghani, fyrrum fjármálaráðherra Afganistans, mun taka við forsetaembætti landsins af Hamid Karzai samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum kjörstjórnar landsins.

Fjórir slasaðir í Pamplóna

Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup San Fermín hátíðarinnar í Pamplóna á Spáni í morgun.

Hótar að sprengja sig í loft upp

Lögregluyfirvöld í Svíþjóð hafa nú umkringt hús í bænum Barfendal en þar innandyra ku vera maður sem hefur hótað að sprengja sig í loft upp.

Um mikilvægan áfangasigur að ræða

Aðskilnaðarsinnar í austurhluta Úkraínu, sem hliðhollir eru Rússum, hópast nú saman í borginni Donetsk en hersveitir úkraínska hersins lögðu eitt af höfuðvígjum þeirra undir sig í gær þegar úkraínski þjóðfáninn var dreginn að húni í Sloviansk.

Andrúmsloftið spennuþrungið í Jerúsalem

Miklar óeirðir hafa geisað í Jerúsalem síðustu daga, en palestínskur unglingspiltur sem var myrtur í borginni fyrr í vikunni var borinn til grafar í dag. Allt kapp er nú lagt á að koma á vopnahléi á milli Hamas-samtakanna og Ísraelshers.

Kona lést hjá særingarmanni

Lögregla í Japan hefur handtekið 81 árs gamlan særingamann eftir að hann lét viðskiptavin drekka mikið magn vatns með þeim afleiðingum að hún lést.

Mikill skógareldur í Gudbrandsdalen

Mikill skógareldur geisar nú í Gudbrandsdalen norðvestur af Lillehammer. Þurrkar síðustu daga og vindur gera allt slökkvistarf erfitt.

"Megum ekki láta börn drukkna“

Forsætisráðherra Ítalíu segir það ekki einungis vera á ábyrgð Ítalíu og annarra Miðjarðarhafslanda þegar menn, konur og börn frá öðrum heimshlutum drukkna í tilraun sinni að ná til Evrópu.

Kennari stunginn til bana í Frakklandi

34 ára móðir grunnskólanema stakk kennara barns síns til bana í skólastofu fullri af skólabörnum í bænum Albi í suðurhluta Frakklands í gær.

Coulson hlaut átján mánaða dóm

Andy Coulson, fyrrum ritstjóri News of the World, hlaut átján mánaða fangelsisdóm fyrir þátt sinn í víðtækum símhlerunum blaðsins.

Artúr gerir usla á austurströndinni

Þúsundir hafa flúið heimili sín í Norður-Karólínu í Bandaríkunum en 2. stigs fellibylur, sem ber heitið Artúr, gengur þar yfir.

Sjá næstu 50 fréttir