Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Keyrði framan á lögreglubíl Sjötug kona lét lífið á Norður Sjálandi í Danmörku í nótt þegar hún ók bifreið sinni á fullri ferð framan á lögreglubíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. 25.8.2009 08:06
Ellefu létust í gassprengingu Að minnsta kosti ellefu létust og þriggja er saknað eftir gas sprengingu í kolanámu í Shanxi héraði í kína í morgun. Sextán námamenn voru við vinnu í göngunum þegar sprengingin varð. Tveimur var bjargað að sögn kínverskra miðla en óttast er um afdrif hinna. 25.8.2009 08:03
Réttarhöld hafin í Íran Réttarhöld hófust í dag í Teheran höfuðborg Írans yfir nokkrum mönnum sem ákærðir eru fyrir að kynda undir óróleika í landinu í kjölfar forsetakosninganna sem fram fóru í júní. 25.8.2009 07:57
Vill fréttina fordæmda Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að sænsk stjórnvöld hafi farið yfir strikið með því að neita að fordæma frétt í sænska dagblaðinu Aftonbladet, þar sem sagt var frá grunsemdum Palestínumanna um að ísraelskir hermenn hefðu drepið Palestínumenn til að selja úr þeim líffæri. 25.8.2009 04:45
MacAskill ver ákvörðun sína Kenny MacAskill, dómsmálaráðherra Skotlands, varði á skoska þinginu í gær ákvörðun sína um að leysa úr haldi Líbíumanninn Abdel Baset al-Megrahi, dauðvona mann sem hafði afplánað átta ár af lífstíðarfangelsi fyrir aðild sína að Lockerbie-málinu. 25.8.2009 04:45
Baráttan við eldana enn erfið Örþreyttir slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar unnu baki brotnu í gær, fjórða daginn í röð, við að halda skógareldum við útjaðar Aþenu í skefjum. Aukin aðstoð frá öðrum ríkjum barst í gær, bæði flugvélar sem dreifa vatni og liðsauki í slökkvistarfið. 25.8.2009 00:30
Refsiaðgerðum ekki aflétt Bandaríkin og Suður-Kórea ætla að halda áfram að framfylgja refsiaðgerðum Sameinuðu þjóðanna gegn Norður-Kóreu, þrátt fyrir sáttaviðleitni sem birst hefur í verkum Norður-Kóreu undanfarið. 25.8.2009 00:15
Bandaríkjamenn æfir út í Skota Bandaríkjamenn eru æfir eftir að Skotar slepptu Abdel Baset al-Megrahi úr fangelsi en hann var dæmdur fyrir að granda farþegaþotu yfir Lockerbie árið 1988. Alls létust 270 manns þegar flugvélin sprakk. Þá létust einnig íbúar fjölbýlishús sem þotan hrapaði á. 24.8.2009 23:15
Fullyrt að poppgoðið hafi verið myrt Poppgoðið Michael Jackson var með banvænan skammt af deyfilyfinu Propofol í líkama sínum þegar hann lést samkvæmt fréttavef BBC. 24.8.2009 20:48
Hótuðu að nauðga mömmu hryðjuverkaleiðtoga Óhugnanlegar yfirheyrsluaðferðir hafa verið afhjúpaðar eftir að skýrsla um yfirheyrslur yfir hryðjuverkamönnum var birt á dögunum. Þar kom fram að starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar hafi hótað að myrða börn Khalid Sheikh Mohammed, en hann hefur verið sakaður um að hafa skipulagt hryðjuverkin þann 11. september árið 2001. 24.8.2009 20:25
Fídel í fínu formi Fyrrverandi leiðtogi Kúbu, Fídel Castro, birtist landsmönnum óvænt í sjónvarpi í gærkvöldi í fyrsta sinn í rúmt ár. 24.8.2009 09:29
Tugir taldir vera í leynifangelsum Bandaríski herinn hefur byrjað að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga í leynifangelsum í Írak og Afganistan. Fangarnir eru allir grunaðir um að tengjast hryðjuverkasamtökum en Rauði krossinn hefur þrýst lengi á varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna um að fá þessar upplýsingar. 24.8.2009 03:00
Eystrasaltsríki fögnuðu upphafi sjálfstæðisbaráttu Mikil hátíðarhöld voru í Eystrasaltsríkjunum þremur um helgina. Tuttugu ár eru liðin í dag frá því að ótal Eistar, Lettar og Litháar tóku höndum saman og kröfðust með táknrænum hætti sjálfstæðis frá Sovétmönnum. 23.8.2009 21:45
Segja 100 uppreisnarmenn hafa fallið Jemenskir hermenn réðust gegn herskáum sjía múslimum í norðanverðu landinu í dag og reyndu að ná bænum Harf Sufyan aftur á sitt vald. Fullyrt er að þeir hafi fellt yfir hundrað bardagamenn, þar á meðal tvo leiðtoga úr röðum þeirra. 23.8.2009 21:00
Miðvikudagar verri en mánudagar Eftir að hafa rannsakað meira en 2,4 milljónir vefdagbóka, þar á meðal Twitter, hafa prófessorarnir Christopher Danforth og Peter Dodds við Vermont háskóla í Bandaríkjunum komist að því að miðvikudagur er versti dagur vikunnar. 23.8.2009 20:01
Tíu þúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi Fjölmörg heimili norðaustan Aþenu, höfuðborgar Grikklands, urðu skógareldum að bráð í nótt og í morgun. Illa gengur að ná tökum á eldunum. Grískt yfirvöld fyrirskipuðu í morgun að tíu þúsund manns skyldi flytja á brott frá heimilum sínum. 23.8.2009 12:50
Bandaríkjaher gefur upp nöfn fanga í leynifangelsum Bandaríkjaher er byrjaður að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga sem herinn haldi í leynifangelsum í Afganistan og Írak. Þetta fullyrðir bandaríska blaðið New York Times í morgun og hefur eftir ónanfgreindum heimildarmönnum í bandaríska stjórnkerfinu. 23.8.2009 11:09
Samdi konsert fyrir kött Nora, fimm ára gömul læða frá Fíladelfíufylki í Bandaríkjunum, er nú orðin fræg á internetinu eftir að litháiski hljómsveitarstjórinn Mindaugas Piecaitis samdi fyrir hana konsert. 23.8.2009 08:30
Þriggja daga þjóðarsorg í Taívan Þriggja daga þjóðarsorg hófst í Taívan í gær. Flaggað er í hálfa stöng til að minnast þeirra sem létu líf sitt í fellibylnum Morakot. 23.8.2009 08:00
Afhentu vopn í skiptum fyrir sakaruppgjöf Hundruð herskárra uppreisnarmanna í sunnanverðri Nígeríu létu vopn sín af hendi í dag við hátíðlega athöfn í Yenagoa. 22.8.2009 22:30
Heppinn ítali vann tugi milljarða í lottó Heppinn Ítali vann einar 146,9 milljónir evra í ofurlóttóinu Suprenalotto sem rekið er af ríkinu. Andvirði vinningsins er meira en 26 milljarðar íslenskra króna. 22.8.2009 21:00
Hæ, ég er með kynsjúkdóm Brasilíska heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið heimasíðu sem gerir fólki kleift að láta elskhuga sína vita af kynsjúkdómasmiti með tölvupóstkorti. 22.8.2009 18:20
Verðandi varnarmálaráðherra Írans eftirlýstur fyrir sprengjuárás Verðandi varnarmálaráðherra Írans er eftirlýstur af alþjóðalögreglunni, Interpol, fyrir að hafa skipulagt sprengjuárás á samkomuhús gyðinga í Argentíu fyrir fimmtán árum. Áttatíu og fimm týndu lífi í árásinni. 22.8.2009 16:40
Segja töluvert um svik í forsetakosningum Afganistan Afganskir kosningaeftirlitsmenn segja að töluvert hafi verið um svik í forsetakosningunum í Afganistan á fimmtudaginn. Evrópusambandið telur að kosningarnar hafi ekki verið að fullu fjrálsar en að mestu réttlátar. 22.8.2009 15:24
Um helmingur treystir Obama Tæpur helmingur Bandaríkjamanna, um 49 prósent þeirra sem tóku þátt í nýrri skoðanakönnun, segist trúa því að Barack Obama Bandaríkjaforseti muni taka réttar ákvarðanir. 22.8.2009 08:45
Þrettán hundruð börn með blýeitrun Meira en þrettán hundruð börn hafa greinst með blýeitrun vegna mengunar frá manganbræðslu í bænum Wenping í Hunan-héraði. Aðeins fáeinir dagar eru frá því hundruð manna greindust með blýeitrun vegna mengunar frá annarri verksmiðju í Kína. 22.8.2009 08:30
Lausn Líbíumanns vekur reiði og deilur Bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt ákvörðun dómsmálaráðherra Skotlands um að leysa Líbíumanninn Abdel Baset al-Megrahi úr haldi. 22.8.2009 07:30
Tveir segjast vera sigurvegarar Bæði Hamid Karzai, núverandi forseti, og Abdullah Abdullah, fyrrverandi utanríkisráðherra í stjórn Karzais, sögðust í gær sannfærðir um að hafa unnið sigur í forsetakosningunum í Afganistan sem haldnar voru daginn áður. 22.8.2009 07:00
Bílaumferð eyðileggur kynlífið Bílaumferð virðist hafa afar slæm áhrif á kynlíf trjáfroska sem búa í námunda við borgir og bæi í Ástralíu. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að umferðarniðurinn drekkir lostafullu kvakki karlfroskana, með hörmulegum afleiðingum. 22.8.2009 03:00
Obama-döðlur seljast langbest Í Mið-Austurlöndum þykja döðlur ómissandi fæða í hinum helga mánuði, ramadan, sem hefst í dag í flestum löndum múslima. Í ár seljast döðlur, sem kenndar eru við Barack Obama Bandaríkjaforseta, betur en aðrar döðlur. „Við höfum hrifist af Obama og þess vegna nefnum við bestu döðlurnar okkar í höfuðið á honum,“ segir Athif Hashim, kaupmaður í Kaíró, höfuðborg Egyptalands. 22.8.2009 02:00
Lausn Megrahis sögð tengjast viðskiptasamningum Lausn Lockerbie sprengjumannsins Abdel Baset al Megrahi er sagt tengjast viðskiptasamningum milli Bretlands og Líbíu. Þessu heldur sonurr Gaddafi ofursta Líbíu fram. 21.8.2009 22:14
Obama hrósar Afgönum fyrir lýðræðislegar forsetakosningar Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að forsetakosningarnar í Afganistan séu mikilvægt skref fram á við fyrir land sem hefur búið við ofbeldi og óstöðugleika árum saman. 21.8.2009 20:57
Skapaði lengsta ljóð í heimi með aðstoð Twitter Rúmenskur vefhönnuður heldur því nú fram að hann hafi skapað lengsta ljóð í heimi. Ljóðið samanstendur af handahófskenndum Twitter skilaboðum enskumælandi notenda og er ein 364 þúsund erindi. 21.8.2009 16:03
Skotbardagar milli lögreglu og bankaræningja í Árósum Til skotbardaga kom milli lögregluþjóna og bankaræningja sem réðust inn í útibú Nordea bankans skammt frá Randersvej í Árósum um klukkan tíu í morgun að dönskum tíma. Lögregluhundur drapst eftir að hann varð fyrir skoti. Einn ræningjanna er í haldi lögreglunnar en talið er að þeir hafi verið fleiri og leitar lögreglan þeirra nú, meðal annars með aðstoð þyrlu. Talið er að ræningjarnir séu frá Litháen. 21.8.2009 11:07
Lockerbie morðingi fékk konunglegar móttökur í Líbíu Aðstandendur þeirra sem létust í Lockerbie ódæðinu eru ævareiðir yfir því að maðurinn sem sprengdi farþegaþotu í loft upp árið 1988 skuli vera frjáls maður. Honum var fagnað sem hetju við heimkona til Líbíu í gærkvöldi. 21.8.2009 09:30
Bush vildi hækka hættustig vegna hryðjuverka kortéri fyrir kosningar Fyrrverandi heimavarnaráðherra Bandaríkjanna segir að stjórnvöld hafi reynt að fá hann til þess að auka hættustigið í landinu rétt fyrir kosningar. 21.8.2009 08:55
Talning hafin í Afganistan Talning atkvæða er hafin í kjölfar forsetakosninga í Afganistan sem haldnar voru í landinu í gær. Milljónir Afgana létu hótanir um ofbeldi á kjörstað ekki aftra sér frá því að mæta en þetta er í annað sinn sem Afganar ganga að kjörborðinu eftir að Talíbanar voru hraktir frá völdum í landinu. 21.8.2009 08:46
Hýdd fyrir að fá sér bjórglas Fyrirsæta ein í Malasíu er fyrsta konan í sögu landsins sem dæmd hefur verið til þess að hljóta sex vandarhögg fyrir að drekka bjór á almannafæri. Dómurinn var felldur af Sharía dómstól landsins en fyrirsætan sjálf hefur nú krafist þess að dómnum verði framfylgt á almannafæri. 21.8.2009 08:44
Strax færð til yfirheyrslu Ellefu menn úr áhöfn rússneska flutningaskipsins Arctic Sea voru samstundis færðir til yfirheyrslu eftir að áhöfnin kom til Moskvu með flugi í gær. 21.8.2009 03:00
Lemúrar hafðir á matseðlinum Fimmtán hafa verið handteknir á eyjunni Madagaskar grunaðir um að hafa slátrað fjölda lemúra. 21.8.2009 02:45
Tveir menn kærðir vegna skartgriparáns í Lundúnum Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við 40 milljón punda rán í Graff skartgripaversluninni í miðborg lundúna, hafa verið ákærðir. Þetta kemur fram í Scotland Yard. 20.8.2009 23:30
Skotárás á Norðurbrú í Kaupmannahöfn Óeinkennisklæddur lögreglumaður er særður eftir skotárás við Jægersborggade á Norðurbrú í Kaupmannahöfn fyrr í kvöld. Maðurinn hlaut skotsár á handlegg og maga. Árásin átti sér stað í hverfi þar sem fíkniefnasalar og glæpagengi ráða ríkjum. 20.8.2009 22:49
Kosningaþáttaka dræm í Afganistan Kjörstöðum hefur nú verið lokað í Afghanistan en í dag fóru fram forsetakosningar í landinu. Ofbeldi og hótanir öfgamanna vörpuðu þó ákveðnum skugga á kosningadaginn. 20.8.2009 20:49
Drengur handtekinn vegna háríkveikju í lest Sextán ára drengur hefur verið handtekinn fyrir að kveikja í hári á ferðamanni i lest sem var á leið frá Hastings til London. 20.8.2009 20:32
Cameron fordæmdir lausn Lockerbie morðingja David Cameron, flokksleiðtogi íhaldsmanna í Bretlandi, fordæmir þá ákvörðun skoskra yfirvalda að sleppa Abdelbaset Ali al-Megrahi úr haldi en hann átti aðild Lockerbie ódæðinu árið 1988 en þá fórust 270 manns um borð í þotu Pan Am flugfélagsins. Cameron segir ákvörðun yfirvalda algjörlega fjarstæðukennda. 20.8.2009 16:15