Lausn Líbíumanns vekur reiði og deilur 22. ágúst 2009 07:30 Fagnað í Líbíu Líbíumenn tóku vel á móti Abdel Baset al-Megrahi á flugvellinum í Trípólí þegar hann kom þangað í fyrrakvöld.Nordicphotos/AFP
Bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt ákvörðun dómsmálaráðherra Skotlands um að leysa Líbíumanninn Abdel Baset al-Megrahi úr haldi. David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, segir að móttökurnar sem al-Megrahi fékk í Líbíu hafi verið afar óviðeigandi. Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hins vegar mistök að hafa látið hann lausan, og ættingjar hinna látnu hafa mótmælt harðlega. Al-Megrahi hélt til Líbíu á fimmtudag, sama dag og hann fékk frelsið. Hann er alvarlega veikur af krabbameini og á ekki langt eftir. Kenny MacAskill, dómsmálaráðherra Skotlands, segist hafa tekið ákvörðun sína af mannúðarástæðum. Þúsundir ungra manna mættu á flugvöllinn í Trípólí, höfuðborg Líbíu, til að fagna al-Megrahi þegar hann kom þangað. Líbíustjórn hefur hins vegar gætt þess að al-Megrahi sjáist ekki opinberlega síðan hann kom þangað, líklega af tillitssemi við bresk og bandarísk stjórnvöld. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hafði áður en al-Megrahi var látinn laus skrifað Moammar Gaddafi, leiðtoga Líbíu, og beðið hann um að sýna nærgætni. Richard Dalton, fyrrverandi sendiherra Breta í Líbíu, segir að móttökur al-Megrahis hafi verið afar lágstemmdar miðað við það sem hefðbundnar kurteisisvenjur þar í landi boða. Abdel Baset al-Megrahi er eini maðurinn, sem hlotið hefur dóm vegna Lockerbie-málsins. Hann var starfsmaður leyniþjónustu Líbíu þegar sprenging varð í bandarískri farþegaþotu yfir skoska bænum Lockerbie árið 1988. Allir farþegar og áhöfn vélarinnar fórust, samtals 259 manns, auk ellefu manna á jörðu niðri sem létu lífið þegar vélin hrapaði. Al-Megrahi hélt ávallt fram sakleysi sínu. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þegar hann var látinn laus á fimmtudag segist hann þakklátur skosku þjóðinni, þrátt fyrir að dvöl hans í fangelsinu hafi verið ömurleg. Jafnframt ítrekar hann enn sakleysi sitt, en segist hafa hætt við að áfrýja málinu vegna veikinda sinna. „Það sem eftir er af lífi mínu þarf ég nú að lifa í skugga þess að dómur minn var rangur." Fljótlega eftir hrap flugvélarinnar beindust böndin að leyniþjónustu Líbíu. Árið 2001 var al-Megrahi dæmdur í lífstíðarfangelsi og hafði afplánað átta ár þegar hann var látinn laus.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Fleiri fréttir Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Sjá meira