Erlent

Bandaríkjaher gefur upp nöfn fanga í leynifangelsum

Hermenn við störf í Afganistan.
Hermenn við störf í Afganistan.

Bandaríkjaher er byrjaður að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga sem herinn haldi í leynifangelsum í Afganistan og Írak. Þetta fullyrðir bandaríska blaðið New York Times í morgun og hefur eftir ónanfgreindum heimildarmönnum í bandaríska stjórnkerfinu.

Hvorki varnarmálaráðuneytið bandaríska né Rauði krossinn hafa viljað staðfesta þetta. Reynist frétt New York Times hins vegar rétt er þetta mikil stefnubreyting fyrir Bandaríkjaher og talin mikill sigur fyrir mannréttindasamtök.

Þau fái aðgang að tugum fanga sem gripnir hafa verið í Afganistan og Írak fyrir að hafa ferðast þangað til að berjast við hlið andspyrnumanna gegn vestrænu herliði.

Bandaríkjaher hefur hingað til ekki viljað veita upplýsingar um fanganna og sagt það geta stefnt baráttunni gegn hryðjuverkamönnum í hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×