Tveir menn kærðir vegna skartgriparáns í Lundúnum 20. ágúst 2009 23:30 Hinir grunuðu
Tveir menn hafa verið kærðir í tengslum við 40 milljón punda rán í Graff skartgripaversluninni í miðborg lundúna. Þetta kemur fram í Scotland Yard. Mennirnir heita Solomun Beyene, 24 ára frá norðvestur London, og Craig Calderwood, 26 ára en ekki er vitað nánar hvaðan hann kemur. Þeir verða ákærðir fyrir rán og samsæri, sem og ólöglega vörslu skotvopna. Mennirnir verða leiddir fyrir Magistrates réttinn í Wimbledon á morgun. Fréttirnar koma í kjölfar fregna af því að þriðji maðurinn hefði verið handtekinn í tengslum við ránið fyrr í kvöld. Hinir tveir mennirnir voru handteknir á þriðjudag. Lögreglan fór á miklar mannaveiðar eftir ránið og sendi út myndir úr öryggismyndavélum. Á myndbandinu sáust mennirnir heimsækja búðina, tveimur dögum fyrir ránið. Rannsakendur glæpavettvanga hafa verið að skoða tvo bíla og mótorhjól sem talið er að hafi verið að notað til að komast undan að ráninu loknu. Einnig er verið að rannsaka skambyssu sem notuð var við ránið sem og búnað til að útbúa dulargervi. Mennirnir komu í svörtum leigubíl á staðinn þar sem ránið átti sér stað. Þeir skipuðu starfsstúlku að láta 43 skartgripi í poka. Þegar þeir fóru út úr búðinni skutu þeir í átt að öryggsverði, áður en þeir stukku upp í bláan BMW. Þeir réttu mótorhjólamanni varninginn rétt áður en þeir lentu í árekstri við leigubíl. Þá reyndu óbreyttir borgarar að blanda sér í málin en mennirnir skutu viðvörunarskotum upp í loft svo fólkið hörfaði. Því næst stigu þeir upp í silfurlitaðan Mercedes Benz. Í síðustu viku var fimmtugur maður yfirheyrður vegna málsins en látinn laus gegn tryggingu. Lögreglan hefur boðið eina milljón punda fyrir upplýsingar sem gætu vísað henni á glæpagengið að baki ráninu.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira