Fleiri fréttir

Opnunarhátíð Ólympíuleikanna hafin

Setningarathöfn Ólympíuleikanna í Peking hófst nú í hádeginu. Þjóðarleiðtogar stórveldanna og önnur fyrirmenni hafa komið sér fyrir í heiðursstúkunum.

Medvedev heitir því að verja samlanda í Suður-Ossetíu

Forseti Rússlands Dmitry Medvedev heitir því að verja samlanda sína sem eru búsettir í Suður-Ossetíu. Átök brutust út þar í nótt á milli Georgíumanna og heimamanna þegar Georgíumenn umkringdu höfuðborg héraðsins Tskhinvali. Medvedev hét einnig að refsa þeim sem bæru ábyrgð á dauða samlanda sína.

Tíu látnir í lestarslysi í Tékklandi

Að minnsta kosti tíu manns eru látnir og meira en hundrað manns særðir eftir að lest klessti á hrunda brú í Tékklandi í morgun. Eru margir slökkviliðsmenn á staðnum að reyna að hjálpa fórnarlömbum slyssins að komast úr lestinni.

Hörð átök í S- Ossetíu

Georgíumenn hafa umkringt Tskhinvali höfuðstað Suður - Ossetíu. Harðir bardagar hafa geysað þar í alla nótt og er talið að minnst fimmtán manns hafi fallið.

Grunaður um að hafa í hótunum gagnvart Obama

Bandarísk yfirvöld hafa ákært 22 ára gamlan karlmann fyrir að hafa hótað því að myrða Barack Obama forsetaframbjóðanda. Maðurinn heitir Raymond Hunter Geisel. Hann er sagður hafa haft uppi hótanir gagnvart Obama í lok júli og talað niðrandi um kynþátt hans.

Ástralska lögreglan upprætir fíkniefnahring

Ástralska lögreglan segist hafa upprætt alþjólegan fíkniefnasmyglhring og gert upptækt mesta magn af alsælu hingað til. Sextán manns hafa verið handteknir í Ástralíu vegna málsins og er búist við að fleiri verði handteknir í Belgíu, Hollandi og á Ítalíu.

Ólympiuleikarnir settir í dag

Þjóðarleiðtogar víðsvegar úr heiminum streyma nú til Peking til að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna sem fram fer í kvöld. Talið er að um 10 þúsund manns taki þátt í athöfninni og að fjórir milljarðar manna muni horfa á.

Bandarískir karlmenn líklegri til að ættleiða en konur

Bandarískir karlmenn á aldrinum átján til fjörutíu og fjögurra ára eru meira en tvöfalt líklegri til að ættleiða börn en konur á sama aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem byggð er á gögnum úr rannsókn á fjölskylduþróun sem gerð var í Bandaríkjunum árið 2002.

Herinn áformar að yfirgefa Írak

Írösk og bandarísk stjórnvöld eru nú nálægt því að ná samkomulagi um að bandarískt herlið yfirgefi Írak í október 2010.

Kínverjar ansa lítt gagnrýni frá Bush

Kínversk stjórnvöld segjast ekki sætta sig við að þjóðhöfðingjar annarra landa blandi sér í innanríkismál þeirra. Að öðru leyti hafa þau vart svarað gagnrýni George W. Bush Bandaríkjaforseta á ástandið í mannréttinda­málum þar í landi.

Hillary hefur ekki útilokað tilnefningu á flokksþingi Demókrata

Hillary Clinton sagði á fundi með stuðningsmönnum sínum í síðustu viku að hún væri enn að vinna að áætlun til þess að hlustað verði á fulltrúa hennar á flokksþingi Demókrata. Hún hefur ekki útilokað að bjóða sig fram til tilnefningar til forseta við hlið Barack Obama.

Kallar eftir einingu í Bólivíu

Forseti Bólivíu, Evo Morales hefur kallað eftir einingu í Bólivíu en spenna eykst í landinu fyrir komandi kosningar á sunnudaginn. Verður kosið um hvort hann og fylkisstjórar hans haldi embætti. Í ræðu sinni í tilefni þjóðhátíðardags Bólivíu gagnrýndi Morales forréttindahópa fyrir að tala fyrir aðgreiningu og vera á móti breytingum.

Harðnandi átök Georgíumanna og Suður-Osseta

Átök á milli georískra hermanna og aðskilnaðarsinna í Suður-Ossetíu fara nú harnandi eftir því sem talsmaður innranríkisráðuneytis Georgíu segir Reuters-fréttastofunni.

Segjast hafa hert leitina að Mladic

Stjórnvöld í Serbíu hafa hert mjög leitina að hershöfðingjanum Ratko Mladic. Hann stjórnaði persónulega fjöldamorðunum í Srebrenica í Bosníustríðinu.

Tuttugasti og annar táningurinn drepinn í London

Táningur var skotinn til bana in í matvörubúð í Suður-London kl. 10 í gærkvöldi. Er hann tuttugasti og annar táningurinn til þess að vera drepinn í London á þessu ári. Talið er að fórnalambið hafi verið átján ára en nítján ára drengur hefur verið handtekinn grunaður um morðið.

Rússar segja Georgíu undirbúa hernaðaraðgerðir

Rússnesk yfirvöld fullyrða að Georgíumenn undibúi nú hernaðaraðgerðir gegn Suður Ossetíu en til bardaga kom á svæðinu í nótt. Suður Ossetía er hérað í Georgíu sem lýst hefur yfir sjálfstæði og eru Rússar sagðir styðja þá ákvörðun. Utanríkisráðherra Rússa sagði í samtali við leiðtoga Suður Osseta í síma í morgun að líta mætti á aðgerðir Georgíumanna í nótt sem undirbúning að frekari stríðsrekstri.

Sprengjuárás í Istanbul

Nokkrum handsprengjum var í morgun varpað á sveitarstjórnaskrifstofu í Istanbul. Vitni sögðust hafa heyrt fjórar sprengingar en aðeins er vitað um einn vegfaranda sem slasaðist í árásinni.

Breskir ríkisstarfsmenn fjölmenna til Peking

Bretar senda rúmlega þrjú hundruð íþróttamenn á Ólympíuleikana í Peking en gestir á vegum breska ríkisins eru helmingi fleiri. Þetta kemur fram í breska blaðinu the Daily Telegraph. 313 íþróttamenn keppa fyrir hönd Bretlands á leikunum en rúmlega 600 einstaklingar sækja leikana heim í boði ríkisins.

Mótmæli í Caracas

Hugo Chavez, forseti Venesúela, er umdeildur maður og enn á ný valda aðgerðir hans á forsetastóli deilum í landinu. Í nótt voru kröftug mótmæli á götum höfuðborgarinnar Caracas gegn áformum forsetans um að banna ákveðnum stjórnmálamönnum að bjóða sig fram að nýju en nokkir mánuðir eru til sveitarstjórnakosninga í landinu .

Sprengjuárás við Svartahaf

Einn lést og annar slasaðist í sprengjuárás á rússneskum sumardvalarstað við Svartahaf í morgun. Sprengjan sprakk í borginni Sochi en borgin mun halda vetrarólympíuleikana árið 2014. Sprengjan sprakk á baðströnd og hefur hún nú verið rýmd og henni lokað. Engar nánari upplýsingar er að hafa á þessari stundu.

Mexíkóar mótmæla aftöku í Texas

Yfirvöld í Mexíkó hafa sent formlegt mómælabréf til utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna í kjölfarið á aftöku á Mexíkóskum ríkisborgara sem fram fór í Texas í fyrrinótt.

Bush deilir á Kínverja

George Bush Bandaríkjaforseti hélt ræðu í Bangkok í nótt þar sem hann ávítti Kínverja fyrir slælega frammistöðu í mannréttindamálum. Viðbúið er að ræðan valdi nokkrum titringi á meðal ráðamanna í Peking en þangað er för Bush heitið frá Tælandi en hann mun verða viðstaddur Ólympíuleikana í borginni sem hefjast á morgun.

Kjærsgaard útskrifuð

Pia Kjærsgaard, leiðtogi danska þjóðarflokksins, var í nótt útskrifuð af sjúkrahúsi en þangað var hún flutt í skyndi í gær. Pia hafði kvartað undan hausverk í síðustu viku og í gær þurfti hún að víkja af sumarfundi flokks síns rétt áður en hún ávarpaði fundargesti.

Ólympíueldurinn nálgast endastöð

Þrír dagar eru þangað til að Ólympíuleikarnir hefjast í Kína. Þessa seinustu daga munu ríflega 800 einstaklingar bera eldinn um stund. NBA-stjarnan Yao Ming var meðal þeirra sem báru eldinn í dag.

McCain gerir aftur gys að Obama í nýrri auglýsingu

John McCain lætur ekki deigan síga í kosningabaráttunni við Barack Obama um bandaríska forsetastólinn og birti í dag nýja auglýsingu þar sem hann líkir Obama aftur við ofurstjörnur Hollywood. Áður hafði McCain gert auglýsingu sem líkti Obama við Paris Hilton og Britney Spears.

Þúsundir í verkfalli í Suður-Afríku

Þúsundir verkamanna hafa í dag tekið þátt í verkfalli um alla Suður Afríku til þess að mótmæla rísandi eldsneytis- og matarverði og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Stéttarfélagið COSATU sem hefur tvær milljónir meðlima hvatti félagsmenn sína til þess að leggja niður störf í dag. Var tilgangurinn að að senda vinnuveitendum sínum skilaboð en þeir íhuga að minnka laun vegna ástandsins.

Óljós svör Írana valda vonbrigðum

Símafundur verður á eftir á milli leiðtoga sex leiðandi þjóða í heiminum þar sem fjallað verðu um hvernig eigi að bregðast við óljósu svarbréfi Írana við tilboði þeirra um samvinnu. Þykja Íranar hafa verið með undanbrögð með óljósu svari sínu.

Kjærsgaard á sjúkrahúsi

Leiðtogi Danska þjóðarflokksins, Pia Kjærsgaard, er nú í rannsókn á sjúkrahúsinu í Hróarskeldu eftir að hún fann fyrir miklum höfuðverk á á sumarfundi flokksins á Sjálandi í dag.

Bílstjóri bin Ladens dæmdur

Salim Hamdan, bílstjóri Osama bin Ladens, var í dag fundinn sekur af bandarískum herdómsstóli í Guantanamo fangabúðunum. Þetta var í fyrsta sinn sem fullt dómsmál fer fyrir bandarískan herrétt síðan í seinni heimstyrjöldinni.

Mikilvægt skref í landsvæðabaráttu norðurheimskautsins

Vísindamenn við háskólann í Durham í Bretlandi hafa gert kort sem sýnir yfirráð ríkja á norðurheimskautinu og möguleg svæði sem gætu orðið bitbein í framtíðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem hannað er svo nákvæmt kort af svæðinu.

Helmingur af prímatategundum jarðar í útrýmingarhættu

Nærrum því helmingur allra prímatategunda eru í útrýmingahættu samkvæmt Alþjóðasamtökunum um verndun náttúru (IUCN). Halda samtökin þessu fram á grundvelli rannsókna hundruða vísindamanna en meira en áratugur er síðan svo viðamikill samantekt hefur verið gert. Hafa stofnar marga tegunda versnað til muna á síðasta áratug.

Herinn tekur völdin af forsetanum í Máritaníu

Valdarán var framið í Afríkuríkinu Máritaníu í morgun þegar herinn handtók forseta landsins, Sidi Mohammed Ould Cheikh Abdallahi, forsætisráðherrann og innanríkisráðherrann.

Mótmæltu fóstureyðingum í Peking

Þrír Bandaríkjamenn voru í morgun handteknir á Torgi hins himneska friðar. Fólkið vildi mótmæla aðgerðum kínverskra stjórnvalda sem miða að því að stemma stigu við fólksfjölgun í landinu en þar mega hjón aðeins eiga eitt barn. Það leiðir til þess að fóstureyðingar eru mjög algengar í landinu. Fólkið sem er kaþólskt og mótmælandatrúar hrópaði ókvæðisorð að stjórnvöldum og sagði konur neyddar í fóstureyðingar til þess að framfylgja lögunum.

Norður Kórea á langt í land

George Bush lofsamaði stjórnvöld í Suður Kóreu í ræðu sem hann hélt í morgun, en sagði að nágrannar þeirra í norðri þurfi að vinna mikið verk áður en hann íhugi að taka Norður Kóreu af listanum yfir öxulveldi hins illa.

Solzhenitsyn jarðaður

Útför rússneska andófsmannsins og rithöfundarins Alexanders Solzhenitsyn fór fram í morgun. Rithöfundurinn lést á Sunnudag, 89 ára gamall og verður hann jarðaður að eigin ósk í Donskoy klaustrinu í Moskvu.

Sjá næstu 50 fréttir