Erlent

Solzhenitsyn jarðaður

Mynd/AFP

Útför rússneska andófsmannsins og rithöfundarins Alexanders Solzhenitsyn fór fram í morgun. Rithöfundurinn lést á Sunnudag, 89 ára gamall og verður hann jarðaður að eigin ósk í Donskoy klaustrinu í Moskvu.

Frægasta verk Solzhenitsyns er Gúlag eyjaklasinn, en þar lýsti hann reynslu sinni af hinum alræmdu fangabúðum Stalíns en þar dvaldi hann í átta ár. Hann var gerður útlægur frá Sovétríkjunum árið 1974 en snéri aftur til heimalandsins árið 1994.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×