Erlent

Kjærsgaard útskrifuð

Pia Kjærsgaard, leiðtogi danska þjóðarflokksins, var í nótt útskrifuð af sjúkrahúsi en þangað var hún flutt í skyndi í gær. Pia hafði kvartað undan hausverk í síðustu viku og í gær þurfti hún að víkja af sumarfundi flokks síns rétt áður en hún ávarpaði fundargesti.

Að sögn lækna á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn er enn óljóst hvað amaði að Kjærsgaard en tvær sneiðmyndatökur á heila leiddu ekkert í ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×