Kínverjar ansa lítt gagnrýni frá Bush 8. ágúst 2008 00:01 Í gær tóku þúsundir sjálfboðaliða þátt í hlaupi með Ólympíueldinn á Kínamúrnum. Í dag lýkur svo, á Ólympíuleikvanginum í Peking, hlaupinu með logann um heiminn, sem hófst í Grikklandi í lok mars. Fréttablaðið/AP
Kínversk stjórnvöld segjast ekki sætta sig við að þjóðhöfðingjar annarra landa blandi sér í innanríkismál þeirra. Að öðru leyti hafa þau vart svarað gagnrýni George W. Bush Bandaríkjaforseta á ástandið í mannréttindamálum þar í landi. Bush þótti óvenju harðorður í garð Kína í ræðu sem hann flutti í Taílandi í gær, skömmu áður en hann hélt til Kína að fylgjast með opnunarhátíð Ólympíuleikanna í kvöld. Hann gagnrýndi ástand mannréttindamála, sagði Bandaríkin andvíg þeirri kúgun sem kínversk stjórnvöld beita þegna sína en lýsti jafnframt stuðningi sínum við trúfrelsi, fjölmiðlafrelsi og annað frelsi. Tímasetningin þótti hentug, bæði fyrir Bush og kínverska ráðamenn. Með því að koma þessari gagnrýni til skila áður en hann kæmi á fund Kínverja tókst Bush að afgreiða málið fyrirfram, svo það þyrfti ekki að flækjast um of fyrir í viðræðum þeirra. Bush gætti þess einnig að vega upp á móti gagnrýnistóni ræðunnar með því að bera lof á kínversk stjórnvöld, meðal annars fyrir að hafa gert mikilvægar markaðsumbætur og sagðist vonast til þess að frelsi muni aukast í kjölfarið. „Breytingar í Kína munu verða á þeirra eigin forsendum og í sátt við sögu Kína og hefðir. En breytingarnar munu samt koma," sagði Bush. „Í dag eru Kína og Bandaríkin vinir," sagði Ma Jianchun, sérfræðingur við stjórnmála- og lögfræðiháskólann í Peking. „Ekki bestu vinir, heldur bara vinir." Í Nepal og á Indlandi efndu þúsundir útlægra Tíbeta til mótmæla í gær. Í Nepal kom til átaka við lögreglu og voru nærri 600 manns handteknir. Á Indlandi tóku þungvopnaðar hersveitir á móti mótmælendum fyrir utan kínverska sendiráðið í Nýju-Delí. Í gær birtist einnig hótun á Netinu frá herskáum múslimum í vestanverðu Kína um að framin verði hryðjuverk á Ólympíuleikunum. Í Bretlandi var aftur á móti tveimur mönnum tekið með fagnaðarlátum í gær þegar þeir komu heim frá Kína, þar sem þeir höfðu verið reknir úr landi fyrir að efna til mótmæla fyrir utan Fuglshreiðrið, helstu Ólympíuhöllina í Peking. Þeir höfðu klifrað upp í ljósastaura og sett upp mótmælaborða sem á stóð: „Frelsið Tíbet." Annar þeirra, Ian Thom, segir að lögreglan hafi spurt þá í þaula en farið vel með þá áður en þeir voru færðir um borð í flugvél og sendir heim.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira