Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guantanamo réttarhöld mögulega dæmd ómerk Fyrstu réttarhöldin í sérstökum bandarískum hérdómsstól í Guantanamo-fangabúðunum gætu verið dæmd ómerk vegna óskýrleika á skilgreiningu á því hvað sé glæpur og hvað sé stríðsglæpur. 5.8.2008 16:53
Stálgirðingar settar upp við landamæri BNA og Mexíkó Stálgirðingar hafa verið settar upp á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó vestur við El Paso en girðingarnar eru ný leið til öryggisráðstafa við landamærin. 5.8.2008 15:27
Saka Frakka um aðild að þjóðarmorðum í Rúanda Þrjátíu og þrír franskir stjórnmálamenn og yfirmenn í franska hernum studdu og komu að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994 og það þarf að draga þá til ábyrgðar. 5.8.2008 15:06
Þýskar lögreglukonur fá „skotheld brjóstahöld“ Þýskar lögreglukonur fá á næstunni það sem þýskir fjölmiðlar kalla skotheld brjóstahöld. 5.8.2008 14:37
Pakistönsk kona sökuð um tengsl við al-Qaida Pakistönsk kona hefur verið flutt frá Afganistan til Bandaríkjanna þar sem hún á yfir höfði sér ákæru fyrir að reyna að myrða fulltrúa á vegum Bandaríkjastjórnar. 5.8.2008 14:08
Bush á leið á Ólympíuleika í Kína George Bush Bandaríkjaforseti er nú á leið til Kína þar sem hann verður við setningu Ólympíuleikanna á föstudaginn. 5.8.2008 12:45
Hundruð votta Solzhenitsyn virðingu sína Hundruð manna hafa í morgun vottað Alexander Solzhenitsyn virðingu sína en lík hans liggur nú á viðhafnarbörum í sal rússnesku vísindaakademíunnar. 5.8.2008 12:30
Snarpur skjálfti í Sichuan-héraði Jarðskjálfti upp á sex á Richter skók Sichuan-hérað í suðvesturhluta Kína laust fyrir klukkan tíu í morgun að íslenskum tíma. 5.8.2008 10:28
Vill ísbirni af lista yfir dýr í útrýmingarhættu Ríkisstjóri Alaska hyggst höfða mál á hendur bandarísku alríkisstjórninni vegna þeirrar ákvörðunar að setja ísbirni á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Vill ríkisstjórinn að dómstólar ógildi ákvörðunina. 5.8.2008 10:06
Of feitur til að deyja Maður einn á dauðadeild í Ohio í Bandaríkjunum hefur tekið til nýstárlegra varna í áfrýjun sinni. Lögfræðingar hans segja að ekki sé hægt að taka hann af lífi vegna þess að hann sé of feitur. 5.8.2008 08:43
Mbeki þvertekur fyrir að hafa tekið við mútum Tabo Mbeki, forseti Suður Afríku, þvertekur fyrir að hann hafi þegið mútur frá þýsku vopnaframleiðslufyrirtæki. Ásakanir um mútuþægni forsetans eru settar fram í Suður Afríska blaðinu Sunday Times en blaðið segir að Mbeki hafi greitt forsetanum fyrir að tryggja að sala á þremur kafbátum gengi í gegn. Forsetinn og talsmenn hans segja ekkert hæft í fréttinni og í sama streng tekur þýska fyrirtækið. 5.8.2008 08:40
Edouard stefnir á Texas Óveðrið Edouard stefnir nú hraðbyri að Texas ríki í Bandaríkjunum og sækir í sig veðrið með hverri klukkustundinni. Stormurinn færist nú Norð-vestur eftir Mexíkóflóa og er búist við því að hann nái styrk fellibyls um miðjan dag. Íbúar Texas búa sig nú undir að óveðrið gangi á land en um fimm og hálf milljón manna búa á svæðinu þar sem búist er við að stormurinn fari yfir. 5.8.2008 08:36
Obama vill ganga á varaforðann Barack Obama, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, vill láta veita 70 milljónum olíutunna úr varaforða landsins til þess að stemma stigu við hækkandi olíuverði í heiminum. 5.8.2008 08:34
Rignir á Dani Miklar rigningar eru nú í Danmörku en í gær var úrkoman á nokkrum stöðum álíka mikil og venja er í öllum ágústmánuði. Á Norður-Jótlandi var úrkoman um 60 millimetrar í gær og á Skagen var hún 70 millimetrar. 5.8.2008 08:29
Clinton vill meira fé í baráttuna við HIV Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kallar eftir auknum fjárframlögum í baráttunni við alnæmi í heiminum. Alþjóðleg ráðstefna um sjúkdóminn stendur nú yfir í Mexíkó og þar sagði Clinton að auka þurfi framlög um fimmtíu prósent á næstu tveimur árum til þess að unnt sé að standa straum af lyfjagjöf til þeirra sem smitast hafa. 5.8.2008 08:25
Lét klóna hundinn sinn Vísindamenn í Suður Kóreu segjast hafa klónað gæludýr bandarísks manns sem gat ekki hugsað sér að sjá á bak hundinum sínum. 5.8.2008 08:18
Ellefu létust á K2 Ellefu fjallgöngumenn fórust á næst-hæsta fjalli heimsins, K2, í Pakistan um helgina. Fólkið var á leið niður af fjallinu eftir að hafa náð á toppinn þegar snjófljóð skall á hópnum, en í honum voru tuttugu og fimm manns. 5.8.2008 07:17
Öryggið tryggt á Ólympíuleikunum Kínversk yfirvöld reyna nú að fullvissa fólk um að áhorfendur og þáttakendur á ólympíuleikunum sem hefjast eftir nokkra daga séu óhulltir. Aðskilnaðarsinnar í Sínjang héraði eru sakaðir um árás á landamærastöð í gær, en forsvarsmenn leikanna segja að ítrustu öryggiskröfur séu uppfylltar í Peking og því sé gestum engin hætta búin. 5.8.2008 07:15
Zuma hylltur við réttarhöld Stuðningsmenn Jacob Zuma, leiðtoga Þjóðarflokksins (ANC) í Suður-Afríku, hafa safnast saman á götum úti í dag, til þess að hylla hann. Zuma mætti fyrir rétt í dag til þess að freista þess að fá ákærur gegn sér felldar niður. 4.8.2008 19:59
Fritzl líklega ákærður fyrir þrælahald Hinn austurríski Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni í kjallara í meira en 24 ár og misnotaði hana kynferðislega gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir þrælahald. Þetta hefur fréttastofa Breska ríkisúvarpsins, BBC, eftir saksóknurum í Austurríki. 4.8.2008 11:59
Sextán kínverskir lögreglumenn myrtir Sextán kínverskir lögreglumenn voru myrtir í árás í borginni Kashgar í Zinjiang. 4.8.2008 11:37
Nóbelsverðlaunahafinn Alexander Solzhenitsyn er fallinn frá Rússneski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Alexander Solzhenitsyn, sem opinberaði fangabúðakerfi Jósefs Stalíns í bókum sínum, lést nærri Moskvu um helgina, 89 ára gamall. 4.8.2008 10:42
Bretar myrtir í Karíbahafinu Þrjátíu og eins árs gamall Breti, Ben Mullany, lést á sjúkrahúsi í Bretlandi um helgina af skotsárum sem hann fékk þegar ráðist var á hann og konu hans á eynni Antigua í Karíbahafi í síðustu viku. 4.8.2008 10:23
Leita leiða til að koma Mugabe frá Í Suður-Afríku eru hafnar á ný samingaviðræður á milli stjórnmálafylkinga í Zimbabwe. Markmið viðræðnanna er að komast að samkomulagi um framtíðarstjórn landsins af hálfu stjórnarandstæðinga, 4.8.2008 10:18
Afmæli Mandela enn fagnað Suður-Afríka hefur helgað þetta ár Nelson Mandela, vegna níræðisafmælis hans. Eiginkonur hans núverandi og fyrrverandi voru viðstaddar mikla afmælisveislu í gær. 3.8.2008 21:00
McCain komið með jafn mikið fylgi og Obama Bandarísku forsetaframbjóðendurnir John McCain og Barack Obama eru hnífjafnir samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallup. 3.8.2008 14:54
Hátt í 60 þúsund Bandaríkjamenn smitast árlega af HIV Mun fleiri Bandaríkjamenn sýkjast árlega af HIV veirunni en opinberar tölur þar í landi gefa til kynna. Þetta kemur fram í skýrslu sem Miðstöð smitsjúkdómavarna þar í landi gaf út. Þar segir að 56 þúsund manns hafi smitast af veirunni árið 2006. 3.8.2008 13:38
Kínverskar klappstýrur æfa fyrir Ólympíuleikana Kínversk stjórnvöld hafa ráðið 600 ungar stúlkur sem klappstýrur á Ólympíuleikunum. Klappstýrur hafa hingaðtil ekki sést á íþróttaviðburðum í Kína. 3.8.2008 12:12
Fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði Að minnsta kosti fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði á fjallinu K-2 á landamærum Pakistans og Kína um helgina. 3.8.2008 09:55
Palestínumenn flýja til Ísraels Tæplega 200 palestínumenn flúðu til Ísraels í gær þegar harðir bardagar brutust út á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á Gaza ströndinni. Níu palestínumenn féllu og níutíu og fimm særðust í bardögunum. 3.8.2008 09:50
Quantas vél nauðlenti vegna leka í vökvakerfi Boeing 767 þota frá ástralska flugfélaginu Quantas varð í dag að snúa við og lenda aftur í skyndi vegna leka í vökvakerfi. Í síðustu viku varð vél frá félaginu að nauðlenda eftir að sprenging gerði stórt gat á skrokk hennar. Quantas er annars eitt öruggasta flugfélag í heimi og hefur aldrei misst flugvél í slysi. 2.8.2008 22:00
Vilhjálmur Bretaprins fer til starfa í varnarmálaráðuneytinu Vilhjálmur Bretaprins mun hefja störf í varnarmálaráðuneytinu í haust. Prinsinn hefur undanfarna mánuði verið undirliðsforingi á einu af herskipum hennar hátignar. Hann hefur einnig lokið flugnámi hjá flughernum. Verið er að búa prinsinn undir að verða yfirmaður breska heraflans þegar hann verður konungur. 2.8.2008 20:00
Rútuböðull fyrir dómara Enginn veit af hverju Vince Weiguang Li réðist skyndilega á meðfarþega sinn hinn 22 ára gamla Tim McLean. 2.8.2008 18:15
Hryðjuverkamaður úr ETA látinn laus Almenningur á Spáni er furðu lostinn yfir því að Jose Ignacio de Juana Chaos, félagi úr aðskilnaðarhreyfingu Baska, hafi verið látinn laus eftir 21 árs fangelsisvist. 2.8.2008 13:06
Útför Thatchers skipulögð Bresk yfirvöld eru byrjuð að undirbúa útför Margaretar Thatcher, þrátt fyrir að hún sé enn lifandi og við ágæta heilsu. 2.8.2008 12:00
Hamas og Fatah berjast Öryggissveitir Hamas á Gaza ströndinni réðust í dag inn í hverfi stuðningsmanna Fatah hreyfingarinnar. Fatah hefndi sín með árásum á hverfi Hamas á Vesturbakkanum. 2.8.2008 11:45
Unglingar myrtir við sundiðkun í Michigan Níu ungmenni voru að synda í á í Marinette sýslu í Michigan á fimmtudagskvöldið. Þau áttu sér einskis ills von þegar allt í einu maður vopnaður riffli hóf formálalaust skothríð á þau. 2.8.2008 11:41
Geislavirk efni láku úr kafbáti Geislavirk efni láku úr bandarískum kafbáti sem var í heimsókn í Japan fyrr á þessu ári. Yfirvöld segja að lekinn hafi verið svo lítill að hann hafi ekki valdið neinum skaða. 2.8.2008 10:35
Airbus A380 lenti á Kennedy velli í fyrsta sinn Airbus A380 lenti í fyrsta sinn á bandarískri jörðu í gær eftir áætlunarflug. A 380 vélin, sem er stærsta farþegaflugvél í heimi, lenti á Kennedy vellinum í New York. Hún er frá flugfélaginu Emirates, flaug frá Dubai og voru 489 farþegar um borð. Mikil eftirvænting ríkti vegna flugsins því að Airbus er í mikilli samkeppni við Boeing flugframleiðandann um framtíðarstöðu á flugvélamarkaði. 2.8.2008 10:05
Ríkisnefnd um mannasiði fyrir Ólympíuleikana Kínverjum hefur verið gert að taka sig á í mannasiðum fyrir Ólympíuleikana - svo sem að hætta að hrækja um allar götur og smjatta. Sérstök ríkisnefnd hefur verið sett á laggirnar til að tryggja framfarir í mannasiðum - nefnd til uppbyggingar andlegrar siðmenningar, eins og hún heitir. 1.8.2008 20:30
Pelosi kemur í veg fyrir kosningu um olíuborun Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings notar vald sitt til þess að koma í veg fyrir kosningu um hvort létta eigi banninu við olíuboranir við strendur Bandaríkjanna. Hefur þetta valdið mikilli óánægju meðal Repúblikana sem hafa þrýst á þingið í margar vikur að létta banninu. 1.8.2008 14:32
Nornaveiðar fjölmiðla komi í veg fyrir sanngjörn réttarhöld Radovan Kardzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba telur að „nornaveiðar" fjölmiðla komi í veg fyrir að hann fái sanngjörn réttarhöld. Ákærur voru lesnar yfir honum í stríðsglæpadómstólnum í Haag í gær. 1.8.2008 12:59
Harðlínumenn í Ísrael vilja kosningar Harðlínumenn í ísraelsku stjórnarandstöðunni krefjast þess nú að efnt verði til kosninga þegar í stað. Það gæti orðið til þess að helsti haukurinn í Likud-bandalaginu, Benjamin Netanyahu, komist aftur til valda. 1.8.2008 12:20
Maður grunaður um að dreifa militisbrandi tók eigið líf Talið er að vísindamaður sem grunaður var um að hafa átt aðild að því að miltisbrandi var dreift í pósti í Bandaríkjunum í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001 hafi svipt sig lífi. 1.8.2008 11:31
Sextán stúlkur fórust í sprengingu í Tyrklandi Sextán skólastúlkur eru látnar eftir að heimavist hrundi í Tyrklandi í nótt í kjölfar gasspreningar. Talið er að rúmlega 40 stúlkur hafi verið í byggingunni þegar hún hrundi og voru þær flestar sofandi. 1.8.2008 10:55