Erlent

Norður Kórea á langt í land

George Bush lofsamaði stjórnvöld í Suður Kóreu í ræðu sem hann hélt í morgun, en sagði að nágrannar þeirra í norðri þurfi að vinna mikið verk áður en hann íhugi að taka Norður Kóreu af listanum yfir öxulveldi hins illa.

Bush er nú á sínu síðasta ferðalagi um Asíu áður en hann lætur af embætti. Í morgun hélt hann blaðamannafund með forseta Suður Kóreu, Lee Myung-bak þar sem hann lofsamaði samskipti ríkjanna. Hann talaði ekki eins vel um einræðisríkið Norður Kóreu og sagði langt í land með að hann tæki það af listanum yfir öxulveldi hins illa auk þess sem ríkið væri enn á meðal þeirra sem studdu fjárhagslega við hryðjuverkahópa víðs vegar um heim.

Hann sagðist hafa miklar áhyggju af stöðu mannréttindamála í landinu auk þess sem auðgun úrans væri áhyggjuefni. En þótt að vel hafi farið á með forsetunum tveimur í Seoul voru þúsundir mótmælenda á götum úti sem mótmæltu Bandaríkjaforseta.

Mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram en lögregla handtók um áttatíu manns og notaði vatnsbyssur til þess að halda fólkinu í skefjum. Næst er ferð forsetans heitið til Tælands en ferðalaginu lýkur í Peking þar sem hann mun verða viðstaddur Ólympíuleikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×