Erlent

Herinn tekur völdin af forsetanum í Máritaníu

Abdallahi, forseti Máritaníu, hefur aðeins verið við völd í um ár.
Abdallahi, forseti Máritaníu, hefur aðeins verið við völd í um ár. MYND/AP

Valdarán var framið í Afríkuríkinu Máritaníu í morgun þegar herinn handtók forseta landsins, Sidi Mohammed Ould Cheikh Abdallahi, forsætisráðherrann og innanríkisráðherrann. Herinn tók forsetann eftir að hann hafði sett af nokkra háttsetta menn innan hersins.

Adallahi tók við embætti forseta Máritaníu eftir kosningar í fyrra og tók við af herforingjastjórn sem stjórnað hafði landinu frá árinu 2005 þegar völdin voru hrifsuð af þáverandi forseta. Stjórnmálaástandið í þessu ríki í norðvesturhluta Afríku hefur verið eldfimt og tvisvar á þessu ári hefur verið skipt um ríkisstjórn.

Fréttastöðin al-Arabiya greindi frá því í morgun að tveiar af brottreknum yfirmönnum hersins hefðu staðið fyrir valdaráninu í morgun. Máritanía var áður nýlenda Frakka en þar búa þrjár milljónir manna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×