Erlent

Kjærsgaard á sjúkrahúsi

Mynd af Piu Kjærsgaard sem flokkur hennar notaði í síðustu kosningum í Danmörku.
Mynd af Piu Kjærsgaard sem flokkur hennar notaði í síðustu kosningum í Danmörku.

Leiðtogi Danska þjóðarflokksins, Pia Kjærsgaard, er nú í rannsókn á sjúkrahúsinu í Hróarskeldu eftir að hún fann fyrir miklum höfuðverk á sumarfundi flokksins á Sjálandi í dag.

Lífvörður frá leyniþjónustu Danmerkur sem var á staðnum kannaði hvort hún hefði fengið blótappa eða heilablóðfall en svo reyndist ekki vera og var Kjærsgaard með meðvitund allan tímann. Engin áhætta var þó tekin og var henni ekið á sjúkrahús til rannsóknar.

Eftir því sem talsmaður hennar segir er ekki um alvarleg veikindi að ræða en Kjærsgaard, sem er 61 árs, verður á sjúkrahúsi þar til á morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×