Erlent

Þúsundir í verkfalli í Suður-Afríku

Mótmælaganga í Pretoria í Suður Afríku.
Mótmælaganga í Pretoria í Suður Afríku. Mynd/AP

Þúsundir verkamanna hafa í dag tekið þátt í verkfalli um alla Suður-Afríku til þess að mótmæla rísandi eldsneytis- og matarverði og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Stéttarfélagið COSATU sem hefur tvær milljónir meðlima hvatti félagsmenn sína til þess að leggja niður störf í dag. Var tilgangurinn að að senda vinnuveitendum sínum skilaboð en þeir íhuga að minnka laun vegna ástandsins.

Verkfallið hefur valdið miklum truflunum í iðnaði eins og námuvinnslu. Auk þess hefur þetta haft áhrif á almenningssamgöngur í stórum hluta landsins. COSATU hefur þegar haldið þrjú staðbundin verkföll og heitir fleiri verkföllum ef ríkistjórnin reyni ekki að halda verðbólgunni í skefjum sem hefur náð 11 prósentum þar í landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×