Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Evu umdeilda en óháða „Eva Joly hefur orð á sér fyrir að vera afar sjálfstæð og slíku fylgir jafnan það gjald að vera umdeildur í leiðinni,“ segir Mads Andenæs, prófessor við lagadeild Háskólans í Ósló. Hann segir að oft hafi staðið styr um störf hennar í Noregi, þar sem hún hafi viðhaft harðar kröfur. 19.6.2009 05:00
Kærunefnd stöðvar Vodafone-samning „Það er ánægjulegt að kærunefndin skuli hafa stöðvað þetta ferli því það var klúður í uppsiglingu," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um þá ákvörðun kærunefndar útboðsmála að stöðva gerð samninga við Vodafone um símaþjónustu fyrir Landspítalann. 19.6.2009 05:00
Sakaður um að svíkja út háar fjárhæðir Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir stórfellt og ítrekað skjalafals, svo og þjófnaði og fíkniefnabrot. 19.6.2009 05:00
Þökur aftur á Ráðhústorgið Bæjarráð Akureyrar hefur tekið vel í erindi Sigurðar Guðmundssonar verslunarmanns og annars áhugafólks um eflingu miðbæjarins á Akureyri um að Ráðhústorgið verði lagt með túnþökum í sumar. 19.6.2009 04:00
Munum fyrir milljónir stolið Miklum verðmætum var stolið úr vörubifreið Línuborunar ehf., þar sem hún var á vinnusvæði við Nesjavallaveg ofan við Nesjavallavirkjun fyrir nokkrum dögum. 19.6.2009 03:30
Eitraður kræklingur í Eyjafirði Lömunareitrið PSP hefur greinst í kræklingi úr Eyjafirði, að því er fram kemur á heimasíðu Matvælastofnunar. Stofnunin varar sterklega við neyslu og tínslu á kræklingi og öðrum skelfiski úr Eyjafirði. Í sýnum sem nýlega voru tekin til þörungaeitursgreiningar reyndist magn PSP vera rétt undir viðmiðunarmörkum en magn Alexandrium-þörunga sem valda eitrun yfir hættumörkum. 19.6.2009 02:00
InDefence: Indriði fer með rangt mál InDefence hópurinn, sem talsvert hefur látið að sér kveða síðan Icesave samningaviðræðurnar komust í hámæli, segir Indriða H. Þorláksson hafa farið með rangt mál í viðtali í Kastljósinu fyrr í kvöld. 18.6.2009 23:44
Stærsta kúlulán Íslandssögunnar „Fjármálaráðherra tekur stærsta kúlulán Íslandssögunnar og hann mun uppskera eins og bankarnir,” sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, við utandagskrárumræður um Icesave samninginn nú undir kvöld. Sigmundur var málshefjandi í umræðunum og gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir framgang hennar í málinu. 18.6.2009 19:15
Mælti fyrir frumvarpi um launabreytingar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um kjararáð á Alþingi nú undir kvöld. Samkvæmt frumvarpinu skal kjararáð gæta þess að föst laun ríkisstarfsmanna fyrir dagvinnu, annarra en forseta Íslands, verði ekki hærri en föst laun forsætisráðherra. 18.6.2009 19:43
Ísbirni stolið af hrekkjalómi „Ég er með tvo ísbirni þarna fyrir utan og nú er annað kvikindið horfið,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður á Akureyri. Sigurður vann sér það til frægðar í síðasta mánuði að narra bæði Morgunblaðið og lögregluna með ísbjarnagabbi. Sigurður varð fyrir því óláni í dag að samskonar ísbjarnarlíki og Sigurður notaði við gabbið var stolið fyrir utan verslun hans The Viking á Laugarvegi 1 í Reykjavík. 18.6.2009 19:33
Landsvirkjun lögð að veði með Icesave Allar eigur íslenska ríkisins eru lagðar að veði með Icesavesamkomulaginu, þar á meðal Landsvirkjun. Þetta er mat Eiríks Svavarssonar, lögmanns, sem hefur síðustu daga legið yfir samningnum sem gerður var við Hollendinga. Eiríkur Svavarssonar er í InDefence hópnum og hefur víðtæka reynslu af alþjóðasamningum. Hann segir sextándu grein laganna kveða á um þetta. 18.6.2009 18:45
Ómerktur lögreglubíll myndaði tugi hraðabrota Ómerktur lögreglubíll útbúinn hraðamyndavél fylgdist með aksturslagi ökumanna á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn föstudag og þriðjudag að því er fram kemur á vef lögreglunnar. 18.6.2009 20:19
Hús rísi úr brunarústum næsta sumar Stórvirkar vinnuvélar hamast nú á brunalóðinni við Austurstræti og Lækjargötu svo undir tekur í miðborg Reykjavíkur þar sem menn vonast til að hús verði farin að rísa - Kvosinni til prýði - næsta sumar, þremur árum eftir að þessi fornfrægu hús brunnu nánast til kaldra kola. 18.6.2009 19:02
Á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi Maðurinn sem eyðilagði íbúðarhús á Álftanesi í gær á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. Frjálsi fjárfestingarbankinn sem nú á húsið ætlar að kæra hann. 18.6.2009 18:48
Bankaráðsseta rektors hefur ekkert með HR að gera Jóhann Hlíðar Harðarson, upplýsingafulltrúi Háskólans í Reykjavík, segir setu Svöfu Grönfeldt í bankaráði Landsbankans ekki hafa neitt með HR að gera, enda hafi HR ekki átt neina fjármuni í Landsbankanum. Þetta áréttar Jóhann vegna greinarinnar Fjórar bækur um hrun eftir Þorvald Gylfason, sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. 18.6.2009 18:18
Sara Dögg komin í leitirnar Sara Dögg Helenardóttir, sextán ára stúlka sem bæði lögreglan og móðir stúlkunnar lýstu eftir fyrr í dag, er nú komin í leitirnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Stúlkunnar hafði verið saknað í fimm daga, eða síðan á laugardag. 18.6.2009 17:19
Reyndi að nauðga vinkonu dóttur sinnar Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem dæmdur var í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa reynt að hafa samræði eða önnur kynferðismök við 16 ára stúlku sem var gestkomandi á heimili hans í apríl á síðasta ári. 18.6.2009 16:57
Icesavesamningur birtur: Hollendingar hafa ellefu gjaldfellingarákvæði Hollendingar hafa ellefu ákvæði í Icesavesamningnum við Ísland sem gerir þeim kleift að gjaldfella rúmlega 200 milljarða króna lán ef eitthvert þeirra er brotið. Fréttastofa hefur samninginn undir höndum og birtist hann hér fyrir neðan. 18.6.2009 16:56
Býður upp á hátíðarmatseðil Jóhönnu og Steingríms „Þetta er það sem að maður hefur um að velja þegar við erum búin að borga Icesave,“ segir kvikmyndagerðamaðurinn Magnús Magnússon sem ákvað að bjóða upp á hátíðarmatseðil fyrir utan Alþingishúsið í dag. Matseðillinn bar yfirskriftina: „Hátíðarmatseðill í boði Jóhönnu og Steingríms“. 18.6.2009 16:30
Icesave samningurinn birtur á Vísi innan skamms Fréttastofa hefur undir höndum samkomulag íslenskra og hollenskra stjórnvalda um Icesave reikninganna frá 5. júní. Samningurinn verður birtur hér á Vísi innan skamms. 18.6.2009 15:58
Raddir fólksins farnar af stað - boða til mótmælafundar á Austuvelli Raddir fólksins boða til mótmælafundar á Austurvelli á laugardaginn kemur klukkan 15. Eftir bankahrunið stóðu samtökin fyrir fjölmörgum mótmælafundum. 18.6.2009 15:34
Afburðanemendur við Háskóla Íslands hljóta styrki Þann 16 júní voru veittir ellefu styrkir til afburðanemenda sem hefja nám í Háskóla Íslands næsta haust. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. 18.6.2009 15:34
Svandís með stóra kúlu: Þarf að fá mér hjálm „Ég er bara með stóra kúlu á höfðinu," segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra en hún varð fyrir því óláni í morgun að detta af hjólinu sínu þar sem hún var á leið í Umhverfisráðuneytið. Svandís var flutt með sjúkrabíl á Landspítalann til aðhlynningar. Hún reyndist ekki hafa fengið heilahristing. 18.6.2009 15:34
Lögreglan lýsir eftir Söru Dögg Helenardóttur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Söru Dögg Helenardóttur, 16 ára, sem er ljóshærð með sítt hár, um 152 cm. á hæð. Þegar hún fór að heiman var hún klædd í ljósbláar íþróttabuxur, hvíta skó og hvíta peysu. Ekki vitað hvernig hún er klædd núna. 18.6.2009 15:23
Átak í atvinnumálum hefur skilað yfir 2200 störfum Iðnaðarráðuneytið hefur lokið fyrstu samantekt á árangri sérstaks átaks ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum sem miðað að því að draga úr atvinnuleysi með sköpun allt að 6000 ársverka á næstu misserum. Þótt ekki séu komnar tæmandi upplýsingar um alla þætti aðgerðanna er niðurstaðan samt sem áður sú að nú þegar má rekja um 2200 til 2500 störf til átaksins, að fram kemur í tilkynningu. 18.6.2009 14:52
Húsinu á Álftanesi mokað í burtu - myndband Grafa mætti í gær út á Álftaness til að moka í burtu rústum húss sem fyrrum eigandi þess gjöreyðilagði í gærdag. Maðurinn hafði nýverið misst húsið í hendur Frjálsa Fjárfestingabankans. Einnig gróf maðurinn bíl sem stóð á lóðinni ofan í holu og mokaði yfir hann. 18.6.2009 14:35
Höskuldur gagnrýndi fundarstjórn Ástu Ragnheiðar Enn á ný var tekist á um fundarstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, á þingfundi í dag þegar Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi Ástu. Hann sagði hana hafa truflað Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Borgarahreyfingarinnar, þegar hún beindi fyrirspurn sinni til forsætisráðherra. 18.6.2009 14:22
Þurfti að fórna golfhring fyrir umræður um Icesave Golfurum brá brún þegar þeir bókuðu sér rástíma í Grafarholti í dag. Þar gaf að líta nafn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem átti skráðan rástíma klukkan 13:50 í dag en umræða um Icesave hefst klukkan þrjú. 18.6.2009 14:14
Jóhanna: Ekki hætta á þjóðargjaldþroti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir engar líkur vera á þjóðargjaldþroti með Icesave-samningunum. Hún sagði mjög sérkennilegt að halda öðru fram. Verið sé að hræða þjóðina. Þetta kom fram í máli Jóhönnu á Alþingi við fyrirspurn Péturs Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 18.6.2009 14:09
Bjarni: Þjóðin mun ekki eiga síðasta orðið um ESB Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að þjóðin muni ekki fá að eiga síðasta orðið um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta kom fram í máli formannsins í umræðum á Alþingi í dag. Þar beindi hann fyrirspurn sinni til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, en hann vildi vita hvaða þýðingu möguleg aðildarumsókn hafi í ljósi þess að lagt verði fram á næstu dögum frumvarp um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur. Bjarni spurði auk þess hvort kæmi til álita að fram fari tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla. 18.6.2009 13:53
Ráðherra datt af reiðhjóli - flutt á spítala Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra féll af reiðhjóli sínu fyrir framan umhverfisráðuneytið um klukkan hálfeitt í dag. Í umhverfisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að Svandís hafi ekki misst meðvitund en engu að síður hafi verið talið öruggast að kalla á sjúkrabíl og flytja hana á slysadeild til nánari skoðunar. Svandís var í Alþingishúsinu í morgun og þaðan var hún að koma þegar óhappið varð. 18.6.2009 13:18
Óljóst hvort að Icesave verði rætt á þingi Icesave samningarnir verða kynntir fyrir alþingismönnum í dag og í kjölfarið verða þeir gerðir almenningi opinberir. Samningsaðilum hefur verið greint frá þessari ákvörðun íslenskra stjórnvalda. 18.6.2009 13:12
Móðir lýsir eftir dóttur sinni - Týnd í fimm daga „Hún er búin að vera týnd síðan á laugardag. Þá fór hún að heiman,“ segir Helen Halldórsdóttir. Helen lýsir eftir dóttur sinni, Söru Dögg Helenardóttur, sem hefur verið týnd í fimm daga. Sara Dögg er sextán ára, ljóshærð, um 155 sm á hæð 18.6.2009 13:11
Heimasíða Vigdísar Finnbogadóttur opnuð á kvenréttindadaginn Á morgun, kvenréttindadaginn 19. júní, verður opnuð heimasíða sem tileinkuð er frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og velgjörðasendiherra tungumála hjá Sameinuðu þjóðunum. 18.6.2009 12:34
Arftaki Gunnars verður hugsanlega ekki bæjarfulltrúi Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru farnir að leita út fyrir raðir bæjarfulltrúa til að finna nýjan bæjarstjóra í stað Gunnars Birgissonar. 18.6.2009 12:16
Þingmenn fá að sjá samkomulagið um Icesave í dag Icesave samningarnir verða kynntir fyrir alþingismönnum í dag og í kjölfarið verða þeir gerðir almenningi opinberir. Samningsaðilum hefur verið greint frá þessari ákvörðun íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 18.6.2009 11:53
Járnfrúin fær járnpinna í handlegginn Járnfrúin svonefnda og fyrrum forsætisráðherra Breta, Margaret Thatcher, þarf að fara í aðgerð þar sem járnpinni verður settur í handlegg hennar sem brotnaði á dögunum. 18.6.2009 11:49
Fyrrum stjórnendur Landsbankans bera alla ábyrgð á Icesave Jón Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir að fyrrverandi stjórnendur Landsbankans bera alla ábyrgð á Icesave reikningunum. 18.6.2009 11:32
Mikill verðmunur á milli sumarnámskeiða fyrir börn Í yfirliti sem verðlagseftirlit ASÍ tók saman um sumarnámskeið barna kemur fram að mikill verðmunur er á milli námskeiða sem í boði eru. Ljóst er að þetta getur verið talsvert kostnaðarsamt fyrir margar fjölskyldur að skipuleggja dagskrá fyrir börn sín í fjórar til sex vikur á sumri þegar skólar eru í fríi. 18.6.2009 11:17
Með stolin verkfæri og kannabis Í morgun var þingfest mál Sýslumannsins á Selfossi gegn 25 ára gömlum karlmanni. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa í fórum sínum verkfæri sem hann mátti vita að væru þjófstolin en einnig fyrir að hafa í fórum sínum tópaksblönduð kannabisefni. 18.6.2009 11:07
Hraðakstur á Háteigsvegi og við Lönguhlíð Fjörutíu og sex voru staðnir að hraðakstri á Háteigsvegi í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu. 18.6.2009 10:45
Eldur kviknaði í bíl við Rauðavatn Eldur kom upp í vélarrými bíls sem var á leið út úr Reykjavík við Rauðvatn á ellefta tímanum í morgun. Ökumaður og farþegar komust út úr bílnum og náðu með aðstoð vegfarenda að slökkva eldinn með slökkvitæki áður en lögregla koma á staðinn. Bifreið mun vera talsvert skemmd og óökufær. 18.6.2009 10:41
Víkingaheimar formlega opnaðir á þjóðhátíðardaginn Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru formlega opnaðir í gær á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Til þeirra teljast sýningarskáli Íslendings sem Guðmundur Jónsson arkitekt hannaði og sýningin Víkingar Norður-Atlantshafsins sem sett er upp í samvinnu við Smithsonian-stofnunina í Bandaríkjunum. 18.6.2009 10:18
Segja þjóðréttarlega stöðu Íslands í hættu InDefence hópurinn segja ekkert skjól vera í Icesave samningunum og að þjóðréttarleg staða Íslands sé í hættu vegna þeirra. Hópurinn hefur undir höndum samning hollenska ríkisins annars vegar og Tryggingasjóðs innistæðueigenda, fjárfesta og íslenska ríkisins hins vegar um lausn Icesave deilunnar. 18.6.2009 09:28
Góð hátíðarhöld og eitt innbrot Hátíðarhöld gærkvöldsins gengu vel fyrir sig að sögn lögreglu en töluverður fjöldi var saman kominn í miðbæ Reykjavíkur í gær í tilefni af þjóðhátíðardeginum. Þeir sem héldu lengst út fóru úr bænum um þrjúleytið en mesti straumurinn út í úthverfin var um eittleytið. 18.6.2009 07:09