Innlent

Afburðanemendur við Háskóla Íslands hljóta styrki

Frá verðlaunaafhendingunni á þriðjudaginn.
Frá verðlaunaafhendingunni á þriðjudaginn.
Þann 16 júní voru veittir ellefu styrkir til afburðanemenda sem hefja nám í Háskóla Íslands næsta haust. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa framúrskarandi árangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Hver styrkur nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í Háskólann, sem er 45.000 krónur. Styrkirnir voru afhentir á Háskólatorgi við hátíðlega athöfn.

Þetta er í annað sinn sem styrkir eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður í fyrra og er markmið hans að styrkja nýnema til náms við Háskóla Íslands. Styrkirnir í ár eru veittir með stuðningi Símans og Happdrættis Háskóla Íslands.

Alls bárust 119 umsóknir um ellefu styrki úr sjóðnum og var samkeppnin hörð. Við val á styrkhöfum var litið til afburðaárangurs á stúdentsprófi en einnig voru lögð til grundvallar sjónarmið um virkni stúdents í félagsstörfum í framhaldsskóla auk árangurs á öðrum sviðum, svo sem í listum eða íþróttum. Stjórnin átti úr vöndu að ráða en hana skipa Þórdís Kristmundsdóttir formaður, Sigurður J. Grétarsson og Björg Björnsdóttir.

Þeir ellefu afburðastúdentar sem valdir voru úr glæsilegum hópi umsækjenda koma úr átta framhaldsskólum, sækjast eftir inngöngu í níu ólíkar námsleiðir og er kynjahlutfallið fjórir karlar og sjö konur.

Styrkhafarnir eru: Arna Pálsdóttir sem hefur grunnnám í efnaverkfræði, Bjarni Þór Sigurbjörnsson sem hefur nám í lögfræði, Edda Pálsdóttir sem hefur nám í umhverfis- og byggingarverkfræði, Hafsteinn Gunnar Hauksson sem hefur BS-nám í hagfræði, Helga Theodóra Jónasdóttir sem hefur nám í lögfræði, Hugrún Jónsdóttir sem hefur BA-nám í hagfræði (samhliða 60 eininga námi í sagnfræði), Urður María Sigurðardóttir sem hefur BS-nám í sálfræði til 180 eininga, Sigurrós Jónsdóttir sem hefur nám í læknisfræði, Stefanía Hákonardóttir sem hefur nám í rafmagnsverkfræði, Tómas Örn Rosdahl sem hefur BS-nám í eðlisfræði og Ögmundur Eiríksson sem hefur nám í stærðfræði með eðlisfræðikjörsvið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×