Fleiri fréttir

Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur.

Bretar fagna Icesave samkomulaginu

Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV.

Rússalán rætt í næstu viku

Samningaviðræður Íslendinga og Rússa varðandi svokallað Rússalán fara fram í Moskvu í næstu viku. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir Dmitry Pankin, fjármálaráðherra Rússlands.

Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn.

Átökin innan VR halda áfram

Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, segir að einhverstaðar virðast hagsmunir félagsmanna hafa gleymst. Hann hefur að undanförnu birt á vefsíðu sinni birt tölvupósta svokallaðrar „skuggastjórnar VR" sem inniheldur fólk sem sat áður í stjórn félagsins og hugnast ekki ný stjórn undir forystu Kristins Jóhannessonar.

Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar.

Hátíð hafsins haldin hátíðleg

Líf og fjör verður á Grandagarði í Reykjavík alla helgina þar sem haldin er Hátíð hafsins. Þetta er í ellefta sinn sem að hátíðin er haldin en hún samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum.

Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave

Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur.

Fólkið talið hafa kveikt í með bensíni

Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin í morgun grunuð um að hafa kveikt í einbýlishúsi við Kleppsveg með bensíni. Karlmaður á miðjum aldri forðaði sér út úr brennandi húsinu sem nánast eyðilagðist í eldinum.

Samkomulagið betra en fyrri drög

Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð.

Staðfestir ekki brotthvarf Þorsteins Pálssonar

Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, staðfestir ekki að Þorsteinn Pálsson láti af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins á næstu dögum. Vefmiðillinn Eyjan fullyrðir að Þorsteinn sé að hætta af eigin ósk sem annar af ritstjórum blaðsins og að Jón Kaldal verði einn ritstjóri.

Mál manns sem lést í fangaklefa í rannsókn

Lögregla hefur staðfest að karlmaður á fimmtugsaldri sem tók líf sitt í fangaklefa í gærmorgun hafi hengt sig. Fullyrt er í Fréttablaðinu í morgun að maðurinn hafi hengt sig, með teppi, en Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn gat ekki staðfest það í samtali við fréttastofu í morgun. Málið er í rannsókn og beðið er niðurstöðu krufningar.

Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð

Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt.

Bíll valt á Snæfellsnesvegi í nótt

Umferðaróhapp varð á Snæfellsnesvegi vestan Borgarness klukkan rúmlega tvö í nótt þegar fólksbíll valt. Tvennt var í bílnum sem slasaðist ekki mikið en fólkið var flutt á næstu heilsugæslu til aðhlynningar, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Bifreiðin er ónýt en svo virðist sem að ökumaðurinn hafi misst stjórn á henni með fyrrgreindum afleiðingum.

Eldur í húsi á Kleppsvegi - þrír handteknir

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í einbýlishúsi á Kleppsvegi á níunda tímanum í morgun. Húsið mun hafa verið mannlaust. Þrír karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um íkveikju, að sögn lögreglu sem vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

Hnífsstungan á Akureyri: Málsatvik enn óljós

Málsatvik í hnífstungumáli á Akureyri í gær eru enn óljós að sögn lögreglu. Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á sextugsaldri sem voru handtekin vegna málsins verða yfirheyrð í dag.

Rýr kvóti næstu ár

Hafrannsóknastofnun (Hafró) leggur til að þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn. Það er tíu þúsund tonnum minna en á yfirstandandi fiskveiðiári. Þó ber þess að geta að upphaflega var úthlutað 130 þúsund tonnum í fyrra og þar með farið eftir ráðleggingum Hafró en síðan var 30 þúsund tonnum bætt við. Útlit er fyrir að þess verði að bíða í þrjú til fjögur ár uns hægt verði að úthluta verulega meiri afla en nú. Einnig leggur stofnunin til að verulega verði dregið úr veiðum á ufsa og ýsu. Þar að auki er útlitið ekki gott fyrir loðnuvertíð næsta vetur en hins vegar mun betra fyrir veturinn þar á eftir.

Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári

Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár.

Røkke og Jón Helgi leita Drekaolíu

Tveir af þekktustu athafnamönnum Íslands og Noregs standa að fyrirtækjunum tveimur sem sóttu um sérleyfi til rannsóknar og vinnslu kolvetnis á Drekasvæðinu. Þetta eru þeir Kjell Inge Røkke, sem stendur að Aker Exploration, og Jón Helgi Guðmundsson, einn aðaleigenda Norvik, sem er einn af stærstu hluthöfunum í Sagex í gegnum Lindir Resources.

Niðurgreiðum ekki strætó

„Námsmenn af landsbyggðinni eyða hverri krónu á höfuðborgarsvæðinu í húsaleigu og kaup á annarri þjónustu og því ekki nema sanngjarnt að þeir njóti sömu kjara hjá höfuðborgarsveitarfélögunum og þeirra eigin íbúar,“ segir í svari til Stúdentaráðs Háskóla Íslands frá sveitarstjórn Mýrdalshrepps sem kveðst ekki telja eðlilegt að hreppurinn niðurgreiði rekstur almenningssamgangna í höfuðborginni.

Hart barist gegn sorpinu

Tillaga Umhverfis­stofnunar um framlengt starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands, sem kveður á um að sorp verði urðað í landi Kirkjuferjuhjáleigu næstu sextán árin, hefur vakið harða andstöðu íbúa í nágrenni stöðvarinnar. Umrædd tillaga var kynnt á borgarafundi fyrr í vikunni.

Hver íbúi skuldar um milljón

Skuldir Álftanesbæjar eru um 2,6 milljarðar króna. Það þýðir 1.048 þúsund krónur á hvern íbúa. Eigið fé sveitarfélagsins er neikvætt um 126 milljónir. Þetta kemur fram í óbirtum ársreikningi Álftaness.

Spurt út í viðskipti borgarinnar og MP

„Ég er hissa á að þessu skuli enn ekki hafa verið svarað – það ætti að vera einfalt að fletta þessu upp,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sem á borgarstjórnarfundi á þriðjudag óskaði eftir upplýsingum um millilið í fimm milljarða króna láni borgarinnar hjá lífeyrissjóðum.

Garðabær stendur langbest að vígi

fjárhagur Tap á hvern íbúa í Reykjavík nam um 598.091 krónu á árinu 2008. Skuldir á hvern íbúa eru 1,3 milljónir á íbúa ef tekinn er mismunur á skuldum og eigin fé.

Ofbeldismaður aftur fyrir dóm

Norðlendingur um fimmtugt, Hans Alfreð Kristjánsson, hefur játað á sig fíkniefnabrot, en hann var gripinn með lítilræði af amfetamíni á Café Amor á Akureyri.

Endurbyggður „Stýró“ vígður

Gervigraslagður sparkvöllur við Öldugötu í Reykjavík, við hlið gamla Stýrimannaskólaskólans og síðar Vesturbæjarskólans, verður vígður klukkan tólf á hádegi í dag. Vígsla hins endurbyggða „Stýró“, eins og svæðið var lengi kallað, helst í hendur við hátíðarhöld vegna 110 ára afmælis KR.

Taka allt að fjórðungi

Dæmi eru um að erlendir milliliðir taki allt að fjórðung í þóknun vegna gjaldeyrissendinga til landsins, komi þær frá löndum utan EES-svæðisins. „Íslenskir bankar geta ekki haft áhrif á þetta, jafnvel þótt þeir hafi gert samninga við erlendu bankana um millifærsluna,“ segir Már Másson hjá Íslandsbanka. Innlendir bankar geti hins vegar haft áhrif á greiðslur sem sendar eru frá landinu, og í þeim tilfellum hefur Íslandsbanki hingað til tekið kostnað erlenda bankans á sig.

Byggt á fyrra starfsleyfi

„Tillaga Umhverfisstofnunar um starfsleyfi Sorpstöðvar Suðurlands til ársins 2025 er byggð á grunni fyrra starfsleyfis svo og eftirlitsferðum starfsmanna stofnunarinnar á urðunarsvæðið.“

Námsmenn fá styrki

Ungum, íslenskum námsmönnum standa nú til boða framfærslustyrkir til dvalar á hinum Norðurlöndunum. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að menntamálaráðherrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna hafi nýlega samþykkt að veita hluta af ráðstöfunarfé Norrænu ráðherranefndarinnar til slíkra styrkja.

Lítil fyrirtæki burðarásarnir

„Það er mjög líklegt að litlum fyrirtækjum muni fjölga á næstunni,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Kettir snúa heim úr áralangri útlegð

Örflögumerkingar á köttum, sem krafist er í samþykkt um kattahald í Reykjavíkurborg frá árinu 2005, hefur gefið afar góða raun og hafa fjölmargir kattaeigendur endurheimt ferfætlingana eftir langa útlegð.

Spáir betri tíð síðar á árinu

„Þetta gerir okkur kleift að nýta betur þau tækifæri sem verða til þegar staðan í alþjóðlegu efnahagslífi batnar,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems. Hann segir margt benda til að það geti orðið á seinni hluta ársins. „Við erum komin í mjög góða stöðu,“ segir hann.

Brakið ekki úr vél Air France

Brakið sem fannst um 650 kílómetra norðaustur af Brasilíu á þriðjudag mun ekki vera úr flugvél Air France sem hvarf á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands á mánudag. Dominique Bussereau, samgönguráðherra Frakklands, gaf út yfirlýsingu þess efnis í gær.

Aðstaða batnar á Vopnafirði

Vopnfirðingar eiga von á flutningaskipi á vegum HB Granda sem inniheldur nýjan löndunarkrana fyrir fiskimjölsverksmiðjuna á staðnum. Er um að ræða einn lið í uppbyggingu uppsjávarvinnslu fyrirtækisins á staðnum. Nú stendur fyrir dyrum flutningur á tíu mjölturnum frá Reykjavíkurhöfn til Vopnafjarðar.

Vonandi stutt í eigendastefnu

„Eignarhalds- og eigendastefnumálin eru hér í vinnslu og þess vonandi skammt að bíða að stefnumótun og reglur þar að lútandi verði birtar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Veiði færeyskra skipa minni nú en árið 2008

Færeysk skip hafa veitt 628 tonn af botnfiski við Ísland á þessu ári og er þorskaflinn þar af 167 tonn. Færeysk skip hafa leyfi til að veiða 1.200 tonn af þorski í landhelginni.

Tugir hjóna að falla á tíma

Íslensk ættleiðing og Foreldrafélag ættleiddra barna hafa lagt til við dómsmálaráðherra að aldurshámark verði fellt úr reglugerð um ættleiðingar og miðað verði við aldurshámark upprunaríkisins, segir í nýju fréttariti Íslenskrar ættleiðingar.

Óttast að þeir semji af sér

„Samningurinn verður sennilega undirritaður í kvöld eða nótt, ég er samt að vona ekki,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins í gærkvöldi. Hann segir samninginn afar slæman.

Icesave-samningur undirritaður í nótt

„Það verður skrifað undir í nótt," segir Birgitta Jónsdóttir, þingkona Borgarahreyfingarinnar um samninginn varðandi Icesave. Samningurinn verður hinsvegar lagður fyrir þing, að öllum líkindum eftir helgi.

Hnífstunga: Maður og kona handtekin

Einn karlmaður á fimmtugsaldri og kona á sextugsaldri hafa verið handtekin vegna hnífstungumáls á Hafnarstræti á Akureyri. Samkvæmt Gunnari Jóhannesi Jóhannssyni, yfirmanni rannsóknardeildar lögreglunar á Akureyri, þá er karlmaðurinn grunaður um að hafa stungið mann á sextugsaldri í íbúðinni á Hafnarstræti.

Sjá næstu 50 fréttir