Innlent

Bretar fagna Icesave samkomulaginu

Bresku ráðherrarnir Gordon Brown og Alistair Darling.
Bresku ráðherrarnir Gordon Brown og Alistair Darling.
Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV.

Samkvæmt samkomulaginu sem samninganefndir Íslendinga, Breta og Hollendinga skrifuðu undir seint í gærkvöld ábyrgjast Íslendingar allt að 640 milljarða íslenskra króna. Í Bretlandi er skuldbindingin 2,2 milljarðar punda, en vegna Icesave reikninganna í Hollandi er skuldbindingin 1,2 milljarðar evra.

Breska fjármálaráðuneytið hefur nú þegar sett afnám hryðjuverkalaganna í ferli, en það mun taka um hálfan mánuð að taka gildi. Miðað er við að lögin falli úr gildi 15. júní næst komandi og þann sama dag verður losað um frystingu á eignum Landsbankans í Bretlandi.




Tengdar fréttir

Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári

Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár.

Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina

Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn.

Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð

Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt.

Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave

Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar.

Samkomulagið betra en fyrri drög

Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð.

Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave

Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×