Innlent

Hver íbúi skuldar um milljón

Skuldir Álftanesbæjar eru um 2,6 milljarðar króna. Það þýðir 1.048 þúsund krónur á hvern íbúa. Eigið fé sveitarfélagsins er neikvætt um 126 milljónir. Þetta kemur fram í óbirtum ársreikningi Álftaness.

„Þetta er skelfileg staða," segir Kristinn Guðlaugsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. Kristín Fjóla Bergþórsdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir aðalskýringuna á tapinu vera efnahagshrunið.

„Við sitjum, eins og flest önnur sveitarfélög, uppi með gífurlega hækkun erlendra lána. Tæplega þriðjungur lánanna var í erlendri mynt og þau hafa hækkað um 500-600 milljónir," segir Kristín.

Tap sveitarfélagsins var 832 milljónir króna á árinu 2008. - vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×