Innlent

Atorka fer í greiðslustöðvun

Atorka hefur óskað eftir greiðslustöðvun, að því er fram kemur í kauphallartilkynningu.

Félagið segir þetta gert til að setja fjárhagslega endurskipulagningu í lögformlegt ferli þar sem tryggðir séu jafnir hagsmunir lánardrottna.

„Stjórn og stjórnendur Atorku stefna að því að leggja fram endanlegar tillögur og samninga við lánardrottna á næstu vikum."

Fram kemur markaðsverð eigna Atorku hafi lækkað umtalsvert vegna samdráttar í efnahagslífinu. Undirliggjandi rekstur félaganna sé þó í flestum tilvikum stöðugur.

- óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×