Innlent

Brakið ekki úr vél Air France

leit Franski flugherinn býr sig til leitar frá herstöð í Dakar, höfuðborg Senegals.
nordicphotos/afp
leit Franski flugherinn býr sig til leitar frá herstöð í Dakar, höfuðborg Senegals. nordicphotos/afp

Brakið sem fannst um 650 kílómetra norðaustur af Brasilíu á þriðjudag mun ekki vera úr flugvél Air France sem hvarf á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands á mánudag. Dominique Bussereau, samgönguráðherra Frakklands, gaf út yfirlýsingu þess efnis í gær.

Allt leikur því enn á huldu um afdrif vélarinnar. Bussereau sagðist harma þá yfirlýsingu brasilískra leitarsveita, sem gefin var út á fimmtudag, að víst væri að brakið sem fannst væri úr vélinni. Hann hvatti til ítrustu varkárni í öllum yfirlýsingum um málið.

Enn er leitað á sjó og úr lofti að flugvélinni.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×