Innlent

Eldur í húsi á Kleppsvegi - þrír handteknir

Frá húsinu við Kleppsveg í morgun.
Frá húsinu við Kleppsveg í morgun. Mynd/Egill

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í einbýlishúsi á Kleppsvegi á níunda tímanum í morgun. Íbúi í húsinu komst út úr húsinu en var ekki meint af. Að sögn lögreglu hafa tveir karlmenn og ein kona verið handtekin grunuð um íkveikju en að öðru leyti vildi lögregla ekki tjá sig frekar um málið.

Að sögn slökkviliðs tókst vel að ráða niðurlögum eldsins. Ekki þurfti að flytja íbúa hússins á slysadeild.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×