Innlent

Rússalán rætt í næstu viku

Dmitry Pankin, fjármálaráðherra Rússlands.
Dmitry Pankin, fjármálaráðherra Rússlands. Mynd/Getty

Samningaviðræður Íslendinga og Rússa varðandi svokallað Rússalán fara fram í Moskvu í næstu viku. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir Dmitry Pankin, fjármálaráðherra Rússlands.

„Þeir koma í næstu viku. Við munum ræða við þá og kynna fyrir þeim tillögur okkar varðandi þetta lán," hefur Reuters eftir fjármálaráðherranum. Hann vill ekki tilgreina hver upphæð hins hugsanlega láns verði.

Þetta staðfesti Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra á blaðamannafundi í dag. Hann sagði að síðast þegar rætt var við Rússa hefði lánsupphæðin 500 milljónir dollara verið nefnd, eða um 60 milljarðar íslenskra króna. Ekki er vitað hvort Rússar hafa þá tölu enn til viðmiðunar. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×