Innlent

Námsmenn fá styrki

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir.

Ungum, íslenskum námsmönnum standa nú til boða framfærslustyrkir til dvalar á hinum Norðurlöndunum. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að menntamálaráðherrar og samstarfsráðherrar Norðurlandanna hafi nýlega samþykkt að veita hluta af ráðstöfunarfé Norrænu ráðherranefndarinnar til slíkra styrkja.

Tilgangurinn er að létta námsmönnum róðurinn vegna áfalla sem stafa af fjármálakreppunni og atvinnuleysi sem henni fylgir. Til ráðstöfunar eru 5,5 milljónir danskra króna á árunum 2009 og 2010.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×