Innlent

Spurt út í viðskipti borgarinnar og MP

Í Reykjavík Fjármálastjóri borgarinnar segir að þjónusta vegna láns Reykjavíkurborgar frá lífeyrissjóðum hafi ekki verið útboðsskyld. Slík viðskipti borgarinnar séu á höndum margra fyrirtækja. Fréttablaðið/Vilhelm
Í Reykjavík Fjármálastjóri borgarinnar segir að þjónusta vegna láns Reykjavíkurborgar frá lífeyrissjóðum hafi ekki verið útboðsskyld. Slík viðskipti borgarinnar séu á höndum margra fyrirtækja. Fréttablaðið/Vilhelm

„Ég er hissa á að þessu skuli enn ekki hafa verið svarað – það ætti að vera einfalt að fletta þessu upp,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sem á borgarstjórnarfundi á þriðjudag óskaði eftir upplýsingum um millilið í fimm milljarða króna láni borgarinnar hjá lífeyrissjóðum.

„Af þessu tilefni er ekki úr vegi að spyrja borgarstjóra að því hvernig að lántökunni var staðið. Er það rétt að til verksins hafi verið fenginn milliliður sem þegið hafi tugi milljóna króna í þóknun?“ spurði Þorleifur á borgarstjórnarfundinum. „Sé svo, óska ég eindregið eftir að vita, hvaða ástæða var til þess að borgin gat ekki milliliðalaust fengið umrætt lán hjá lífeyrissjóðum landsmanna og sloppið þannig við umtalsverð fjárútlát.“

Fyrirspurn Þorleifs hefur ekki enn verið svarað. Hins vegar liggur fyrir að það er fyrirtækið MP verðbréf sem hefur milligöngu um viðskiptin.

Þorleifur Gunnlaugsson

Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, segir að rætt hafi verið við ráðgjafa borgarinnar og þreifað fyrir sér með þóknanir áður en samstarfið við MP hafi verið ákveðið. Fjármálaviðskipti borgarinnar séu dreifð á marga aðila og að venjan hafi ekki verið sú að bjóða út verkefni á borð við þetta sem reyndar feli í sér mikla umsýslu með stórum skuldabréfaflokki til 45 ára í Kauphöllinni. Í viðskiptum eins og um ræði sé nauðsynlegt að vera í samstarfi við fyrirtæki sem eigi aðild að Kauphöll Íslands.

„Ef við hefðum verið í beinum samningum við lífeyrissjóðina þá hefði verið líka um að ræða einhvers konar þinglýsingargjöld eða stimpilgjöld á gerningum vegna veðs. Ef það hefði verið niðurstaðan hefði það verið margfaldur þessi kostnaður. Það er okkar mat að alveg sama hvort horft er á vaxtakjörin sjálf eða umsýslugjöld eða annað kostnað sem tengdur er þessari lántöku þá séum við bara í mjög hagstæðu máli,“ segir Birgir sem kveður það af og frá að MP sé í þessu máli í einhverri sjálftöku á peningum hjá borgarsjóði.

Birgir Björn Sigurjónsson

Aðspurður segir Birgir það ekki hafa tíkðast hjá borginni að bjóða út verkefni eins og þessi.

„Við höfum ekki heldur boðið út alla fjármálaþjónustuna við okkur. Ef það væri, að við byðum út alla fjármálaþjónustu við borgina; eftirlit með erlendum lánum og innlendum lánum, skuldabréfaútboð og -útgáfu og hvað sem væri – þá auðvitað væri það útboðsskylt. En við höfum verið með þetta miklu meira í smábútum og reynt að semja eins vel um hvert og eitt og við höfum getað,“ segir fjármálastjóri Reykjavíkurborgar.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×