Innlent

Vonandi stutt í eigendastefnu

Steingrímur j. Sigfússon
Steingrímur j. Sigfússon

„Eignarhalds- og eigendastefnumálin eru hér í vinnslu og þess vonandi skammt að bíða að stefnumótun og reglur þar að lútandi verði birtar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Formaður viðskiptanefndar, Álfheiður Ingadóttir, hefur krafist þess að staðið verði við stjórnarsáttmála og mótuð eigendastefna. Nýlegar mannaráðningar bankanna, án þess að stöðurnar hafi verið auglýstar, hafa komist í hámæli.

„Bönkunum er ætlað að ástunda góða stjórnsýslu og viðhafa gagnsæi og fagleg vinnubrögð,“ segir Steingrímur.

„En fyrir einstakar ákvarðanir verða bankastjórar og bankaráð að svara.“- kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×