Innlent

Niðurgreiðum ekki strætó

„Námsmenn af landsbyggðinni eyða hverri krónu á höfuðborgarsvæðinu í húsaleigu og kaup á annarri þjónustu og því ekki nema sanngjarnt að þeir njóti sömu kjara hjá höfuðborgarsveitarfélögunum og þeirra eigin íbúar," segir í svari til Stúdentaráðs Háskóla Íslands frá sveitarstjórn Mýrdalshrepps sem kveðst ekki telja eðlilegt að hreppurinn niðurgreiði rekstur almenningssamgangna í höfuðborginni.

„Meginhluti menntastofnana Íslendinga er á höfuðborgarsvæðinu og sveitarfélögin þar hagnast á því að fá unga fólkið okkar til sín í nám," segja Mýrdælingar. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×