Innlent

Veiði færeyskra skipa minni nú en árið 2008

Færeysk skip hafa veitt 628 tonn af botnfiski við Ísland á þessu ári og er þorskaflinn þar af 167 tonn. Færeysk skip hafa leyfi til að veiða 1.200 tonn af þorski í landhelginni.

Það sem af er árinu er afli færeyskra skipa mun minni en á sama tíma í fyrra en þá höfðu þau landað 1.070 tonnum af botnfiski. Þorskaflinn var þá rúm 250 tonn.

Áætlaður afli norskra línuveiðiskipa í apríl er 336 tonn. Í aflanum var mest um keilu eða 174 tonn og lönguaflinn var 123 tonn. Þorskaflinn var hins vegar aðeins rúmlega þrettán tonn. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×