Innlent

Átökin innan VR halda áfram

Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR.

Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, segir að einhverstaðar virðast hagsmunir félagsmanna hafa gleymst. Hann hefur að undanförnu birt á vefsíðu sinni birt tölvupósta svokallaðrar „skuggastjórnar VR" sem inniheldur fólk sem sat áður í stjórn félagsins og hugnast ekki ný stjórn undir forystu Kristins Jóhannessonar.

Kristinn var kjörinn formaður félagsins í mars eftir mikil átök um þáverandi formann Gunnar Pál Pálsson. Á sama tíma urðu talsverðar bretyingar á stjórn félagsins.

„Ég hef heyrt veður af því að hinir nýkjörnu ætli að losa sig við þá sem voru fyrir í stjórn í kosningum að ári. Við vorum illa tekin í bólinu síðast, en ætlum við að láta þau komast upp með þetta? Over my dead body! Ég ætla allavega að láta þau hafa fyrir því, svo mikið er víst,“ segir í tölvupósti sem Ragnar Þór birti í dag.

Búist var við átökum á félagsfundi VR sem haldinn var í vikunni en í samtali við fréttastofu sagði Kristinn að fundurinn hafi verið hófstilltur.


Tengdar fréttir

Hatrömm átök skugganna við nýja stjórn VR

Búist er við átakafundi á félagsfundi VR í kvöld en hann hefst klukkan hálf átta. Nýkjörinn stjórnarmaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, hefur snúið vörn í sókn og birt tölvusamskipti „VR skugganna" sem eru þeir sem eru á móti nýrri stjórn eða tilheyrðu þeirri gömlu.

VR fundur hófstilltur - skuggastjórnin hélt sig til hlés

„Þetta var hófstilltur fundur," segir Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR en félagsfundur var haldin í kvöld að beiðni félagsmanna. Að sögn Kristins var aðallega um upplýsingafund að ræða og var hvergi hvikað frá fundardagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×