Innlent

Taka allt að fjórðungi

már másson
már másson

Dæmi eru um að erlendir milliliðir taki allt að fjórðung í þóknun vegna gjaldeyrissendinga til landsins, komi þær frá löndum utan EES-svæðisins.

„Íslenskir bankar geta ekki haft áhrif á þetta, jafnvel þótt þeir hafi gert samninga við erlendu bankana um millifærsluna," segir Már Másson hjá Íslandsbanka. Innlendir bankar geti hins vegar haft áhrif á greiðslur sem sendar eru frá landinu, og í þeim tilfellum hefur Íslandsbanki hingað til tekið kostnað erlenda bankans á sig.

Dæmi, sem blaðið hefur skoðað, sýnir að af fjörutíu evra greiðslu frá Afríku stóðu 28,74 evrur eftir þegar lagt hafði verið inn á innlendan gjaldeyrisreikning. Þar af hafði erlendi milliliðurinn, Deutsche Bank, tekið tíu evrur.

Tekið skal fram að annað gildir um greiðslur innan EES-svæðisins. Þar má banki ekki taka meira fyrir færslu milli landa en sem samsvarar kostnað hans af innlendri millifærslu. - kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×