Innlent

Óttast að þeir semji af sér

„Samningurinn verður sennilega undirritaður í kvöld eða nótt, ég er samt að vona ekki," sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins í gærkvöldi. Hann segir samninginn afar slæman.

„Reyndar hafa breskir sem og íslenskir lögfræðingar haldið því fram að íslenska ríkinu beri ekki að axla þessa ábyrgð en þarna erum við að afsala okkur þeim möguleika. En síðan eru vextirnir alltof háir, 5,5 prósent. Alveg á svo eftir að koma í ljós hvaða áhrif þetta hefur á lánshæfismat ríkisins og síðan gjaldmiðilinn," og telur í því samhengi vert að hafa í huga að milljarðarnir 640 séu reiknaðir út frá gengi Seðlabankans.

„Ef gengið fellur þá hækkar þessi upphæð allverulega." - jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×