Innlent

Lítil fyrirtæki burðarásarnir

frá málþinginu Fjöldi gesta var málþingi Viðskiptaráðs sem haldið var í tilefni af útgáfu skýrslu ráðsins um stöðu lítilla og smárra fyrirtækja hér. Fréttablaðið/Vilhelm
frá málþinginu Fjöldi gesta var málþingi Viðskiptaráðs sem haldið var í tilefni af útgáfu skýrslu ráðsins um stöðu lítilla og smárra fyrirtækja hér. Fréttablaðið/Vilhelm

„Það er mjög líklegt að litlum fyrirtækjum muni fjölga á næstunni,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Viðskiptaráð kynnti í gær skýrslu um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja hér á landi. Þar kemur fram að 99 prósent fyrirtækja landsins eru lítil og meðalstór. Þótt þau eru smá eru þau mörg og samanlögð einn stærsti vinnuveitandi landsins og þar með burðarás í íslensku atvinnulífi.

Lítil og meðalstór fyrirtæki hér eru á bilinu 25 til 27 þúsund talsins. Þar af eru örfyrirtæki langflest, eða 22 til 23 þúsund. Hjá örfyrirtæki starfa allt að tíu starfsmenn en allt að 250 hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Í skýrslunni kemur fram að helmingur launafólks vinni hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum, eða allt að 130 þúsund manns.

Viðskiptaráð hélt málþing í tilefni útgáfunnar undir yfirskriftinni „Margt smátt gerir eitt stórt“. Þar fluttu erindi auk Finns þau Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Bogi Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Skjals, Eiríkur Hilmarsson, einn eigenda Kaffitárs, og Christina Sommer, forseti samtaka lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu. - jab




Fleiri fréttir

Sjá meira


×