Fleiri fréttir

Leitað að göngumanni á Ingólfsfjalli

Lögreglan ásamt björgunarsveitum af Selfossi og Hveragerði leita nú að sjötugum göngumanni sem varð viðskila við hóp sem var á fjallinu í dag. Hópurinn kom niður um hádegisbil en maðurinn skilaði sér ekki niður. Mikil þoka er á fjallinu og maðurinn ekki með búnað til þess að rata niður að sögn varðstjóra hjá lögreglu.

Ógreiddur reikningur þrefaldaðist vegna innheimtukostnaðar

Ógreiddur reikningur vegna lækniskostnaðar nærri þrefaldaðist eftir að lögfræðistofa rukkaði sjúklinginn um 12 þúsund krónur í innheimtukostnað. Gjörsamlega siðlaust, segir sjúklingurinn sem ætlar ekki að greiða innheimtukostnaðinn.

Vilja lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára

Hátt í sex þúsund manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem vill lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára. Á síðu hópsins segir að sjálfræðisaldurinn á Íslandi sé 18 ára en ekki megi kaupa áfengi þó þeim aldrei séð náð. Kosningarétt fá þeir sem eru 18 ára og þeir verða einnig fjárráða við þann aldur. Þú mátt skuldbinda þig annarri manneskju við 18 ára aldurinn en mátt ekki skála í tilefni dagsins segir á síðunni.

Grunur um tvö svínaflensutilfelli í viðbót

Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni nú í dag. Það hafa því tvö tilfelli bæst við en í gær lék grunur á að fjórir fjölskyldumeðlimir mannsins hefðu smitast.

Meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni

Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar tók sæti á Alþingi nú eftir kosningar. Hann var virkur þátttakandi í hinni svokölluðu Búsáhaldabyltingu og má segja að hún hafi komið honum inn á þing. Hann segir að fólk hringi í sig oft á dag uppfullt af reiði og sé tilbúið til þess að gera hvað sem er. Hann segir meiri reiði í fólki nú en í Búsáhaldabyltingunni.

Fangageymslurnar fullar hjá lögreglu

Fimmtán aðilar gista nú fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og eru þær nánast fullar að sögn varðstjóra. Ellefu gistu í nótt en fjórir bættust við í morgun. Töluverður erill var í bænum í nótt enda margir stúdentar að útskrifast í gær. Engar alvarlegar líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu en nokkuð var um smá pústra.

Vilja ræða við grunaðan barnaníðing

Foreldrar Madeleine McCann hafa biðlað til grunaðs barnaníðings að „sýna skilning" og vinna með einkaspæjara sem skoðar málið. Einkaspæjarateymi hjónanna vill fá að yfirheyra hinn 64 ára gamla Raymond Hewlett á næstu dögum með von um að hann geti varpað ljósi á hvarf dóttur þeirra úr sumarfríi í Portúgal í maí 2007.

Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi

Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar.

Vel mætt í Þvottalaugagönguna

Fjöldi borgarbúa tók þátt í Þvottalaugagöngunni LAUGA VEGURINN 2009 - gengið á vit sögunnar sem Listahátíð í Reykjavík og listamannahúsið START ART stóðu fyrir í dag. Um var að ræða glæsilegan gjörning tileinkaður þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal. Safnast var saman við útitaflið í Lækjargötu þar sem nemar í Listaháskóla Íslands, uppáklæddir eins og þvottakonur klæddust fyrr á öldum, brugðu á leik með þvottahrúgu og harmonikkusveitin Vaskar Konur spiluðu harmonikkulög.

Hefur ekki greitt húsaleigu frá áramótum

Háskólinn á Bifröst hefur ekki greitt húsaleigu frá því fyrir áramót og eigandi fasteignanna gæti farið fram á háskólinn rými húsnæðið. Lagaleg flækja, segir rektor skólans, sem bendir á að eigandinn hafi ekki uppfyllt atriði kaupsamnings sem snúa að viðhaldi og yfirtöku lána. Rektorinn er sagður hafa verið bæði ósamvinnuþýður og erfiður í samningum.

Vel mætt á samstöðufund á Austurvelli

Vel var mætt á samstöðufund sem Hagmunasamtök um heimilin héldu á Austurvelli í dag að sögn Þórðar Björns Sigurðssonar frá samtökunum. Hann treysti sér ekki til þess að skjóta á mannfjöldatölur en sagði Austurvöll hafa verið þétt skipaðan. Fjórir ræðumenn héldu tölur og hljómsveitin EGÓ lék tónlist inn á milli.

Samkeppniseftirlitið gerði húsleitir hjá hótelkeðjum

Samkeppniseftirlitið fór í húsleitir hjá nokkrum hótelkeðjum hér á landi síðast liðinn miðvikudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru aðgerðirnar liður í rannsókn sem er langt á veg komin og varðar ferðaþjónustuna. Rannsóknin snýr að því hvort umræddir aðilar séu þátttakendur í samkeppnislagabrotum en rannsóknin hefur staðið yfir í þónokkurn tíma og tengist húsleit sem gerð var hjá samtökum ferðaþjónustunnar þann 2.mars 2007.

Síríus suðusúkkulaði hefur ekkert breyst í 76 ár

Vegna yfirlýsinga Sverris Guðjónssonar í Fréttablaðinu í dag, vill sælgætisframleiðandinn Nói Síríus taka skýrt fram að Síríus Konsúm súkkulaðið hefur ekkert breyst í nærri heila öld. Fyrirtækið harmar rangfærslur þær sem söngvarinn setur fram í blaðinu, um að breytingar hafi orðið á innihaldi súkkulaðisins. Þetta er alrangt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Nóa Siríus í dag. Þar segir ennfremur:

Óvissuferð Össurar endaði með barsmíðum og handtöku

Starfsmenn stoðtækjaframleiðandans Össurar hf. fóru í í óvissuferð í gær sem endaði með ósköpum þegar starfsmenn fyrirtækisins slógust harkalega fyrir utan höfuðstöðvar fyrirtækisins. Að sögn lögreglu voru tveir handteknir vegna málsins og þrír fór á sjúkrahús. Þeir handteknu eru nú í yfirheyrslum hjá lögreglu sem verst allra frétta af málinu. Ekki er vitað um tildrög árásarinnar en meðal annars var hafnaboltakylfu beitt.

Kannabisræktun í miðborg Reykjavíkur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í miðborginni um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur en um helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á fertugsaldri hafa játað aðild sína að málinu og telst það upplýst. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Hyggjast leiðrétta mistök viðskiptaráðherra

Fátt bendir til þess að fyrrum starfsmenn Sparisjóðabankans og Straums Burðaráss fái greidd út laun um næstu mánaðamót þrátt fyrir yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um hið gagnstæða. Þingmaður Framsóknarflokks undrast seinagang stjórnvalda í málinu.

Sá smitaði var að koma frá New York

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir að maðurinn sem smitaður er af H1N1, Svínaflensu, hafi verið að koma frá New York fyrir helgi en gert er ráð fyrir hann hafi smitast þar og óttast er að fjölskylda hans sé einnig smituð. Hann segir heilbrigðisyfirvöld hér á landi ekki bregðast hart við þessum fréttum en leggja til að viðkomandi haldi sig heima.

Svínaflensan komin til Íslands

Fyrsta tilfellið af H1N1, betur þekkt sem svínaflensa, hefur greinst á Íslandi grunur leikur á að fjórir til viðbótar séu smitaðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni. Þá segir að viðkomandi tilfelli séu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.

Sendiherra Íslands í Bretlandi á heimleið

Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra í Bretlandi er á heimleið og mun að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins taka að sér önnur mikilvæg störf fyrir ráðuneytið.

Klippa þurfti ökumann úr bifreið eftir árekstur - óskað eftir vitnum

Nokkuð harður árekstur var á mótum Breiðholtsbrautar og Jaðarsels um hálf ellefu leytið í morgun þegar tveir bílar skullu saman. Þrír farþegar voru í hvorum bíl og slasaðist ökumaður annarrar bifreiðarinnar nokkuð en beita þurfti klippum til þess að ná honum út úr bílnum. Ágreiningur er um tildrög slyssins og óskar lögregla eftir vitnum.

EGÓ á samstöðufundi á Austurvelli í dag

Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli í dag klukkan 15.00. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau telji þær aðgerðir sem stjórnvöld hafi ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi, skulda meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur en þetta er 280% aukning að sögn samtakanna.

Ölvaður á Akureyri: Stal bíl og keyrði útaf

Bifreið var stolið við Klettaborg á Akureyri um hálf fimm leytið í morgun en þjófurinn komst ekki langt þar sem hann keyrði útaf í grenndinni. Bíllinn er ónýtur eftir útafaksturinn en ökumaðurinn skarst örlítið við verknaðinn og þurfti að sauma nokkur spor í hann. Hann er grunaður um ölvun við akstur og sefur nú úr sér á lögreglustöðinni á Akureyri.

Eldur í Vestmannaeyjum í nótt

Laust fyrir klukkan hálf tvö í nótt, aðfararnótt laugardagsins, var tikynnt um eld í einbýlishúsi við Brimhólabraut í Vestmannaeyjum.

Minnast vélhjólamannsins sem lést

Hópur fólks kom saman við Hringbraut klukkan tíu í kvöld til að minnast Árna Ragnars Árnasonar sem lést þegar að hann féll af hjóli sínu í gærkvöld.

Harður árekstur í Auðbrekkunni

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir harðan árekstur milli fólksbíls og jeppa í Auðbrekku í Kópavogi á sjöunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu virðist annar bíllinn hafa farið á öfugan vegarhelming með þeim afleiðingum að bílarnir rákust saman. Lögreglan segir að báðir bílarnir hafi verið fluttir á brott með kranabíl.

Borgarstjórn samþykkir tillögu Ólafs Magnússonar

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs og stjórnar OR tillögu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um bann við sölu á eignum borgarinnar í orkufyrirtækjum .

Fyrningarleiðin mun gera útgerðarbæi gjaldþrota

Fyrningarleið í sjávarútvegi mun setja atvinnulíf fjölda útgerðarbæja í rekstrarvanda á örfáum árum og gera það gjaldþrota á 7 árum, segir í yfirlýsingu frá meirihluta bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum.

Telur hægt að ná hagstæðum lánasamningum við Norðurlönd

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, er vongóður um að Íslendingar nái hagstæðum samningi við Norðurlönd vegna lánveitingar þeirra til Íslands. Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kostar Íslendinga rúma 3 milljarða króna á ári.

Bæjarstjóradóttirin tók fúlgur fjár fyrir vinnu sína

Fyrirtæki dóttur bæjarstjórans í Kópavogi rukkaði allt að fjórfalt gangverð fyrir umbrot og hönnun á afmælisriti bæjarins fyrir fjórum árum, að mati auglýsingastofu í Reykjavík. Umfangsmikil viðskipti bæjarins við dóttur bæjarstjórans eru í hæsta máta óeðlileg segir fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi.

Fá engar skaðabætur vegna sjónmengunar

Hjónin á Mýrum á Egilstöðum fá ekki skaðabætur af hálfu Landsvirkjunar vegna sjónmengunar samkvæmt Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómarinn Símon Sigvaldsson skilaði hinsvegar inn séráliti þar sem hann sagðist ósammála meðdómurum sínum í hinum fjölskipaða dómi.

Bifhjólamenn minnast Árna Ragnars í kvöld

Bifhjólamenn ætla að hittast við gatnamót Hringbrautar og Birkimels í kvöld þar sem Árni Ragnar Árnason lést í umferðarslysi í gærkvöldi. Kveikt verður á útikertum og hefst athöfnin klukkan 22.

Ríkið sýknað af hlaupaárás

Ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna skaðabótakröfu sem maður á sextugsaldrinum lagði fram. Málavextir eru þeir að maðurinn var að ganga heim til sín eftir að hafa skemmt sér í miðborg Reykjavíkur í febrúar árið 2005. Þegar hann kom fyrir horn á húsi við Hverfisgötu kom maður hlaupandi á harðaspretti á móti honum.

Jóhanna flytur munnlega skýrslu um efnahagsmál

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um efnahagsmál á þingfundi á mánudaginn. Skýrslan er flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna. Þingmenn allra flokka munu taka þátt í umræðum um skýrsluna.

Framsóknarmenn reiðbúnir til að vinna langt fram á sumar

Þingmenn Framsóknarflokksins eru til í að vinna langt fram á sumar ef vinnan í þinginu snýst um veigamikil mál, segir Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Framsóknarflokksins. „En við sjáum ekki ástæðu til þess að sitja inn á þingi til að ræða einhver smámál ef það má orða það þannig.“

Flugslys vegna vindhviðu

Tveggja hreyfla flugvél endaði ofan í skurði við flugvöllinn á Flúðum eftir hádegi.

Hætta viðræðum haldi sveitarfélög fast við launaskerðingu

Fulltrúar Kennarasambands Íslands í viðræðum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, sem nú standa yfir, lögðu fram yfirlýsingu á fundi aðila í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að yfirlýsingin sé lögð fram í ljósi frétta og viðtala um að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti nú öllum ráðum til að fá stjórnvöld til að breyta grunnskólalögum með það að markmiði að skerða laun um 5 prósent. „Fulltrúar KÍ telja ekki heiðarlegt að sitja við samningaborð og leita sameiginlegra lausna meðan einn aðili þess samráðs nýtir tímann til að fá löggjafann í lið með sér í tilraunum sínum til að skerða kjör.“ Í yfirlýsingunni segir meðal annars að Kennarasamband Íslands muni taka afstöðu til áframhalds í sameiginlegri vinnu fyrir 29. maí og mun afstaðan fyrst og fremst taka mið af framvindu þessa máls.

Boðið upp á ókeypis tannlækningar í síðasta sinn

Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands bjóða upp á ókeypis tannlækningar fyrir börn og unglinga í síðasta sinn í bili á morgun laugardag. Þetta verður í fjórða sinn sem barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör er boðið upp á fría tannlæknaþjónustu. Stefnt er að því að taka upp þráðinn í haust.

Lést í umferðarslysi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á mótum Hringbrautar og Birkimels í Reykjavík um átta leytið í gærkvöld, þegar bíl var ekið í veg fyrir bifhjól hans, hét Árni Ragnar Árnason. Hann var fæddur árið 1972 og lætur eftir sig 11 ára son.

Stjórnvöld hafa ekki staðið við samkomulagið við AGS

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist sannfærð um að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við sinn hluta samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hún segir einkennilegt að ekki hafi komið fram um hvað endurskoðun samkomulagins við sjóðinn snúist. Þá telur hún klofning vera á milli og innan stjórnarflokkanna um lántökuna.

Sjá næstu 50 fréttir