Innlent

Fangageymslurnar fullar hjá lögreglu

Fimmtán aðilar gista nú fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og eru þær nánast fullar að sögn varðstjóra. Ellefu gistu í nótt en fjórir bættust við í morgun. Töluverður erill var í bænum í nótt enda margir stúdentar að útskrifast í gær. Engar alvarlegar líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu en nokkuð var um smá pústra.

Þá gistu tveir fangageymslur lögreglunnar á Akureyri og einn var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×