Innlent

Vel mætt á samstöðufund á Austurvelli

Vel var mætt á samstöðufund sem Hagmunasamtök um heimilin héldu á Austurvelli í dag að sögn Þórðar Björns Sigurðssonar frá samtökunum. Hann treysti sér ekki til þess að skjóta á mannfjöldatölur en sagði Austurvöll hafa verið þétt skipaðan. Fjórir ræðumenn héldu tölur og hljómsveitin EGÓ lék tónlist inn á milli.

„Við erum mjög ánægð með þessa mætingu og finnum fyrir miklum stuðningi almennings," segir Þórður en helstu kröfur samtakanna eru meðal annars að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum.

Hann segir nokkurn fjölda fólks hafa skráð sig í samtökin upp á síðkastið og eins hafa ýmsir aðilar verið að setja sig í samband við samtökin. „Til dæmis hefur Verkalýðsfélag Akranes og Framsýn fyrir norðan lýst yfir stuðningi við okkar hugmyndir. Síðan var varaformaður VR að tala á fundinum þannig við finnum fyrir stuðningi úr ýmsum áttum."

Þórður segir enga ákvörðun hafa verið tekna um hvort fundur sem þessi verði endurtekinn en samtökin ætla að hittast í Borgartúni 3 á næsta miðvikudag þar sem hægt verður að kynna sér málefni samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×