Innlent

EGÓ á samstöðufundi á Austurvelli í dag

Í ljósi þess neyðarástands sem ríkir á Íslandi boða Hagsmunasamtök heimilanna til samstöðufundar á Austurvelli í dag klukkan 15.00. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau telji þær aðgerðir sem stjórnvöld hafi ákveðið að grípa til séu því miður hvergi nærri fullnægjandi. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins munu 28.500 fjölskyldur á Íslandi, skulda meira en þær eiga í árslok 2009. Árið 2007 var um að ræða 7.500 fjölskyldur en þetta er 280% aukning að sögn samtakanna.

Umrædd neikvæð eiginfjárstaða er fyrst og fremst til komin vegna höfuðstólshækkana gengis- og verðtryggðra lána. Lánin hafa rokið upp úr öllu valdi í kjölfar verðbólguskotsins sem orsakaðist af gengishruni krónunnar. Við höfnum því alfarið að almenningur verði látinn sæta ábyrgð á efnahagshruninu með þessum hætti.

Hagsmunasamtök heimilanna vilja:

* Að gengis- og verðtryggð lán verði leiðrétt með almennum aðgerðum

* Að áhætta milli lánveitenda og lántakenda verði jöfnuð

* Afnema verðtryggingu

* Að veð takmarkist við þá eign sem sett er að veði

* Samfélagslega ábyrgð lánveitenda

Ræðumenn:

Bjarki Steingrímsson, varaformaður V.R.

Guðrún Dadda Ásmundardóttir, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna Ólafur Garðarsson, í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarstjórnarfulltrúi

Hljómsveitin EGÓ kemur fram




Fleiri fréttir

Sjá meira


×