Innlent

Harður árekstur í Auðbrekkunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bílarnir eru illa útleiknir. Mynd/ Björn Sigurðsson.
Bílarnir eru illa útleiknir. Mynd/ Björn Sigurðsson.
Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild eftir harðan árekstur milli fólksbíls og jeppa í Auðbrekku í Kópavogi á sjöunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu virðist annar bíllinn hafa farið á öfugan vegarhelming með þeim afleiðingum að bílarnir rákust saman. Lögreglan segir að báðir bílarnir séu mikið skemmdir og hafi verið fluttir á brott með kranabíl.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×