Innlent

Vilja lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára

Hátt í sex þúsund manns vilja að áfengisaldruinn verði lækkaður niður í 18 ár.
Hátt í sex þúsund manns vilja að áfengisaldruinn verði lækkaður niður í 18 ár.
Hátt í sex þúsund manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem vill lækka áfengisaldurinn niður í 18 ára. Á síðu hópsins segir að sjálfræðisaldurinn á Íslandi sé 18 ára en ekki megi kaupa áfengi þó þeim aldrei séð náð. Kosningarétt fá þeir sem eru 18 ára og þeir verða einnig fjárráða við þann aldur. Þú mátt skuldbinda þig annarri manneskju við 18 ára aldurinn en mátt ekki skála í tilefni dagsins segir á síðunni.

„Þrátt fyrir að þú ert fjarráða þá er þér meinað að kaupa þér áfengi fyrir aurinn sem þú ert búinn að vinna þér inn fyrir , er ekki nokkuð fáranlegt að þegar þú ert fjarráða þá er þér meinað að kaupa áfengi ?" segir á síðu hópsins.

Þá er vitnað í 18.grein áfengislaga en þar segir:

„Óheimilt er að selja, veita eða afhenda áfengi þeim sem er yngri en 20 ára. Ávallt þegar ástæða er til að ætla að kaupandi eða viðtakandi áfengis hafi ekki náð þessum aldri skal sá sem selur, veitir eða afhendir það láta hlutaðeiganda sanna aldur sinn með því að sýna skilríki með mynd eða á annan fullnægjandi hátt ''

Hægt er að sjá síðu hópsins hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×