Innlent

Sendiherra Íslands í Bretlandi á heimleið

Sverrir Haukur Gunnlaugsson
Sverrir Haukur Gunnlaugsson

Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendiherra í Bretlandi er á heimleið og mun að sögn Urðar Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins taka að sér önnur mikilvæg störf fyrir ráðuneytið.

Sverrir Haukur hefur verið sendiherra í Bretlandi síðan árið 2003 og því verið þar mun lengur en þau fjögur ár sem almennt er að sendiherrar sitji í hverju landi.

Við stöðu hans tekur Benedikt Jónsson starfandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. Hann hefur áður verið sendiherra í Moskvu og Genf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×